Jón Ingi Hákonarson
Jón Ingi Hákonarson
Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi mun áfram leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta var ákveðið á félagsfundi um helgina þegar gengið var frá lista flokksins.
Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi mun áfram leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta var ákveðið á félagsfundi um helgina þegar gengið var frá lista flokksins. Í öðru sæti er Karólína Helga Símonardóttir fjármálastjóri og Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri Flensborgarskólans, skipar þriðja sætið. Viðreisn bauð í fyrsta sinn fram lista í Hafnarfirði í síðustu kosningum og náði einum manni inn, Jóni Inga.