Enskur yfirmeldari. S-Allir
Norður | |
♠ÁD765 | |
♥D9 | |
♦K82 | |
♣Á87 |
Vestur | Austur |
♠K832 | ♠109 |
♥KG52 | ♥86 |
♦Á7 | ♦DG1065 |
♣K96 | ♣G1053 |
Suður | |
♠G4 | |
♥Á10743 | |
♦943 | |
♣D42 |
Suður spilar 3G.
Það er gömul saga og ný að þeir sem mikið melda kunna að gera sér mat úr litlu. Englendingurinn Michael Byrne er yfirmeldari. Hann var hér í suður í viðureign við Sviss í 8-liða úrslitum HM. Byrne passaði í byrjun og Piedra Fernando í vestur opnaði á Standard-laufi. Norður (Kieran Dyke) kom inn á 1♠, austur (Pierre Zimmermann) sagði pass og Byrne teygði sig í 1G. Dyke bjóst við betri spilum og hækkaði í 3G. Hjartatvistur út.
Byrne stakk upp drottningu og spilaði spaða á gosann heima og kóng vesturs. Zimmermann hafði látið hjartaáttu í fyrsta slaginn (frávísun), en Fernando ákvað samt að spila hjartakóng – sexan úr austri og TÍAN frá Byrne! Fernando beit á agnið og spilaði aftur hjarta upp í gaffalinn. Byrne tók hjartaslagina, spilaði tígli á kóng, tók svo ♠ÁD og sendi vestur loks inn á spaðaáttu til spila frá laufkóngnum! Níu stórglæsilegir slagir.