Á sýningunni Húllumhæ á bárujárnið í Hjarta Reykjavíkur sýnir Örn Karlsson úrval af tölvuklippum frá árunum 2015-2021. Einnig má sjá kvikar myndatilraunir með hljóði sem Örn gerði árið 2009.
Á sýningunni Húllumhæ á bárujárnið í Hjarta Reykjavíkur sýnir Örn Karlsson úrval af tölvuklippum frá árunum 2015-2021. Einnig má sjá kvikar myndatilraunir með hljóði sem Örn gerði árið 2009. Á opnuninni kemur út nýtt bókverk eftir Örn sem hann kallar Manifesto Malbikarans og er gefið út í 50 tölusettum og árituðum eintökum. Opnun verður í dag, laugardag, klukkan 16-18.