Heimamaður Sævar Freyr er borinn og barnfæddur Skagamaður. Hann hefur verið bæjarstjóri frá 2017 og hefur starfað með tveimur meirihlutum.
Heimamaður Sævar Freyr er borinn og barnfæddur Skagamaður. Hann hefur verið bæjarstjóri frá 2017 og hefur starfað með tveimur meirihlutum.
Baksvið Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Mikil íbúafjölgun hefur átt sér stað á Akranesi síðustu árin og virðist ekkert lát þar á. Þegar ekið er inn í bæinn blasa við byggingarkranar og fjölbýlishús af fjölbreyttu tagi rísa í bænum.

Baksvið

Andrés Magnússon

Stefán E. Stefánsson

Mikil íbúafjölgun hefur átt sér stað á Akranesi síðustu árin og virðist ekkert lát þar á. Þegar ekið er inn í bæinn blasa við byggingarkranar og fjölbýlishús af fjölbreyttu tagi rísa í bænum. Mörg þeirra stutt á veg komin en önnur bíða þess að komast í hendur nýrra eigenda innan tíðar.

Bæjarfélagið hefur tekið meðvitaða ákvörðun að byggja upp í loftið enda landlítið. Umkringt minni sveitarfélögum sem af ólíkum ástæðum hafa kosið að standa utan seilingar þegar sameiningar hafa verið ræddar og reyndar.

Sævar Freyr Þráinsson hefur verið bæjarstjóri á Akranesi frá árinu 2017, var ráðinn til starfa af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Þegar nýr meirihluti Samfylkingar og Framsóknarflokks tók við völdum 2018 var umboðið við hann endurnýjað.

„Ég gerði það upp við mig nýverið að mig langar til þess að halda áfram, þ.e. ef eftirspurn er eftir mínum kröftum,“ útskýrir Sævar en hann segir ekki minni uppgangstíma framu ndan en þann sem ríkt hefur síðustu árin og að það freisti sín mjög að fá að koma að þeim málum.

Hann segir að tækifærin fram undan tengist bæði þeirri starfsemi sem atvinnulífið byggi nú þegar á en einnig sé stefnt að því að skjóta fleiri styrkum stoðum undir atvinnulífið þar sem menntun og færni íbúanna nýtist sem best.

Skuldastaðan góð

Á árunum eftir bankahrun var fjárhagsstaða Akraness ekki upp á marga fiska og margt í viðhaldi bæjarins sem sat á hakanum. Staðan nú er gjörbreytt og skuldahlutföll með því lægra sem sést á landinu. Sævar Freyr segir stöðuna góða og að bærinn hafi m.a. safnað upp handbæru fé til þess að geta ráðist í framkvæmdir. Nú sé bærinn að auka skuldir sínar en það sé gert hóflega og kjörin sem bjóðist nú á markaði geri bænum kleift að greiða upp eldri og óhagstæðari lán og greiðslubyrðin muni ekki breytast þótt skuldirnar aukist að nokkru marki.

Sævar Freyr segir að Akranes eigi mikið inni þegar kemur að uppbyggingu ferðaþjónustu. Til dæmis er ekkert hótel í bænum en öflugir aðilar skoða nú möguleika á uppbyggingu slíkrar starfsemi. Þótt ferðaþjónustan sé ekki mjög sýnileg í bænum segir Sævar Freyr að greining á því atvinnuleysi sem kom upp í bænum í kjölfar kórónuveirunnar hafi sýnt að fjöldi fólks hafi haft lifibrauð sitt af þeirri atvinnugrein þótt atvinnan hafi verið sótt út fyrir bæjarmörkin.

Hann segir forréttindi felast í því að eiga eftir að sækja fram í þessari atvinnugrein, eins og raunar mörgum fleiri.