Jón Finnbogason.
Jón Finnbogason.
Jón Finnbogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis. Jón hefur starfað á fjármálamarkaði við margvísleg stjórnunar- og sérfræðistörf í 23 ár.

Jón Finnbogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis. Jón hefur starfað á fjármálamarkaði við margvísleg stjórnunar- og sérfræðistörf í 23 ár. Hann starfaði hjá Stefni á tímabilinu 2003 til 2008 og aftur 2013 til 2017 þegar hann veitti skuldabréfateymi félagsins forstöðu og var staðgengill framkvæmdastjóra. Frá 2017 hefur Jón starfað sem útlánastjóri Arion banka og frá árinu 2019 hefur hann verið forstöðumaður fyrirtækja innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs bankans. Stefnir er eitt elsta og stærsta sjóðastýringarfyrirtækið hér á landi, stofnað árið 1996, með um 300 milljarða króna í virkri sjóðastýringu.