Ingunn Eir Andrésdóttir
Ingunn Eir Andrésdóttir
Eftir Ingunni Eiri Andrésdóttur: "Við eigum að horfa björtum augum til framtíðar, fagna og ýta undir meiri atvinnuuppbyggingu. Einungis með sterku og fjölbreyttu atvinnulífi fyrir alla verður Fjarðabyggð ákjósanlegur staður til búsetu."

Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er undirstaða velferðar, forsenda framfara og fólksfjölgunar. Öflugt atvinnulíf kallar á uppbyggingu innviða og íbúðarhúsnæðis og bættar samgöngur, sem er mikilvægt í fjölkjarna bæjarfélagi.

Fiskeldi er sú atvinnugrein sem er í mestum vexti á Íslandi í dag. Fagna ég uppbyggingu laxeldis í Fjarðabyggð og þeim störfum sem það skapar í bæjarfélaginu okkar, bæði beinum störfum og afleiddum störfum sem þjónusta laxeldið. Það er mikilvægt að atvinnutækifærum fjölgi á Austurlandi því öflugt atvinnulíf er undirstaða eftirsóknar í búsetu.

Álver Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði hefur mikil áhrif á uppbyggingu á Austurlandi, skapar fjölda manns atvinnu og gefur af sér til samfélagsins með ýmsum hætti. Vinnustaður Alcoa-Fjarðaáls er stór ástæða þess að ég flutti aftur á heimaslóðir frá höfuðborgarsvæðinu. Ég fór að heiman til að sækja nám eins og margt fólk á Austurlandi og var síðan komin í góða vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kom að því að stofna fjölskyldu og velja búsetu til frambúðar þá spilaði atvinna í álverinu stórt hlutverk í að við ákváðum að flytja á Eskifjörð, þar sem ég er uppalin og mín fjölskyldubönd eru. Eiginmaðurinn fékk vinnu í álverinu – ef ekki hefði verið fyrir atvinnutækifæri í Fjarðabyggð væri alls óvíst að ég byggi þar í dag.

Við eigum að horfa björtum augum til framtíðar og fagna og ýta undir meiri atvinnuuppbyggingu. Einungis með sterku og fjölbreyttu atvinnulífi fyrir alla verður Fjarðabyggð ákjósanlegur staður til búsetu.

Höfundur er snyrtifræðingur og rekstraraðili. Höfundur skipar 12. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.