— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrlur, svifnökkvar og bryndrekar voru meðal þeirra tækja sem komu við sögu á lendingaræfingu bandarískra landgönguliða sem fór fram á Miðsandi í Hvalfirði í gær.

Þyrlur, svifnökkvar og bryndrekar voru meðal þeirra tækja sem komu við sögu á lendingaræfingu bandarískra landgönguliða sem fór fram á Miðsandi í Hvalfirði í gær.

Glampandi sól og strekkingsvindur var úti þegar æfingin fór fram, en að sögn Marvins Ingólfssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar, var veðrið mun betra en skipuleggjendur þorðu að vona. Var hann afar ánægður með æfinguna þar sem allt gekk að óskum en hann segir þó aðalmarkmiðið hafa verið að tryggja öryggi þeirra sem tóku þátt og að halda umhverfistjóni í lágmarki. Þá hafi einnig verið mikilvægt að halda truflun fyrir íbúana í firðinum í lágmarki. 6