2023 Robert Lewandowski er sagður vera á leiðinni til Barcelona.
2023 Robert Lewandowski er sagður vera á leiðinni til Barcelona. — AFP
Pólski knattspyrnumaðurinn Robert Lewandowski mun færa sig frá Bayern München og til Barcelona á frjálsri sölu eftir næstu leiktíð. Pólska ríkissjónvarpið TVP greindi frá því í gær.
Pólski knattspyrnumaðurinn Robert Lewandowski mun færa sig frá Bayern München og til Barcelona á frjálsri sölu eftir næstu leiktíð. Pólska ríkissjónvarpið TVP greindi frá því í gær. Lewandowski hefur verið einn besti framherji Evrópu undanfarinn áratug eða svo og skorað 309 mörk í 379 leikjum í þýsku 1. deildinni með Dortmund og Bayern. Pólverjinn verður samningslaus sumarið 2023 og Daily Mail segir að hann hafi þegar samþykkt þriggja ára samning við Barcelona.