Lýður Þ. Þorgeirsson
Lýður Þ. Þorgeirsson
Lýður Þ. Þorgeirsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Lýður sagði upp störfum í bankanum í lok síðustu viku.

Lýður Þ. Þorgeirsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Lýður sagði upp störfum í bankanum í lok síðustu viku. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka haustið 2017 en varð síðar forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar.

Töluverðar breytingar hafa orðið á stjórnendateymi Arion banka á undanförnum dögum. Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason lét í síðustu viku af störfum sem aðstoðarbankastjóri þegar hann var ráðinn forstjóri SKEL fjárfestingafélags. Við starfi hans tók Iða Brá Benediktsdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, en hún mun gegna því starfi samhliða því að vera aðstoðarbankastjóri. Iða Brá hefur starfað hjá Arion og forverum hans í rúm 20 ár.