Undankeppni HM karla
Umspil, 2. umferð, fyrri leikir:Þýskaland – Færeyjar 34:26
• Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Finnland – Króatía 21:34
Ísrael – Ungverjaland 32:33
Grikkland – Svartfjallaland 25:23
Slóvenía – Serbía 31:34
Tékkland – Norður-Makedónía 24:24
Austurríki – Ísland 30:34
*Portúgal og Holland mætast í dag en Belgía er komin á HM þar sem Rússlandi var vísað úr keppni. Seinni leikir liðanna fara fram á laugardag og sunnudag.
Danmörk
Fallkeppnin:Ringköbing – Aarhus United 22:37
• Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 5 skot í marki Ringköbing, 22 prósent.
Skanderborg – Randers 24:24
*Ajax 8, Skanderborg 4, Randers 4, Aarhus United 4, Ringköbing 2. Ein umferð eftir og neðsta liðið fellur.