Veitingamennirnir Ágúst Freyr Hallsson, annar eigenda Maika´i, og Haukur Már Hauksson, yfirkokkur og einn stofnenda Yuzu-veitingastaðanna, eru að opna nýjan veitingastað saman á Hafnartorgi við Lækjargötu.

Veitingamennirnir Ágúst Freyr Hallsson, annar eigenda Maika´i, og Haukur Már Hauksson, yfirkokkur og einn stofnenda Yuzu-veitingastaðanna, eru að opna nýjan veitingastað saman á Hafnartorgi við Lækjargötu. Staðurinn mun sérhæfa sig í svokölluðum poke-skálum eins og vinsælt er víða erlendis.

„Þetta er til hérlendis sem aukaréttur á matseðli á nokkrum stöðum en þetta verður fyrsti staðurinn þar sem poke er aðalrétturinn,“ segir Ágúst í samtali við mbl.is. Staðurinn verður staðsettur í mathöll sem til stendur að opna á Hafnartorgi.

„Einhver myndi kippa í mig fyrir að kalla þetta mathöll, en þetta verður rými þar sem verða bæði verslanir og matsölustaðir. Þarna verður göngugata og þetta er síðasti áfanginn í hinni fullbúnu mynd Hafnartorgs þar sem allt kemur heim og saman. Við bjóðum upp á bjór og vín og þarna á að vera góð stemning,“ segir Ágúst jafnframt.

„Poke-skálar eru nokkurs konar sushi-réttur. Opið sushi í skál. Við verðum með mikið af fisk þarna og aðrar sjávarafurðir. Ferskur lax og túnfiskur er stór hluti af góðu poke,“ segir Ágúst og segir staðinn muni verða með sjávarþema í bland við asískan arkitektúr.

Ágúst sjálfur á og rekur veitingastaðinn Maika´i ásamt kærustu sinni, Elísabetu Mettu Ásgeirsdóttur, sem er einnig staðsettur á Hafnartorgi. Einnig eru þau með Maika´i-staði í Smáralind og matarvagn.

Haukur, sem er yfirkokkur, lærði hjá Hrefnu Sætran og er því vel að sér þegar kemur að asískum mat og sjávarréttum. Opnaði hann einnig staðinn Yuzu á hverfisgötu ásamt fleirum, sem hefur einnig opnað stað í mathöllinni Borg29 í Borgartúni.

viktorpetur@mbl.is