Kjörkassi Góð ákvörðun tekin.
Kjörkassi Góð ákvörðun tekin. — Morgunblaðið/Ómar
Formaður kjörstjórnar Skorradalshrepps hefur spurst fyrir um það hjá Persónuvernd hvort farið hafi verið yfir nýsett kosningalög og reglugerð, með tilliti til kosninga til sveitarstjórnar.

Formaður kjörstjórnar Skorradalshrepps hefur spurst fyrir um það hjá Persónuvernd hvort farið hafi verið yfir nýsett kosningalög og reglugerð, með tilliti til kosninga til sveitarstjórnar. Spyr hvort virkilega þurfi að birta kennitölur og starfsheiti þeirra sem biðjast undan kjöri. Það sama gildir raunar um alla frambjóðendur við listakosningar.

Yfirkjörstjórn sveitarfélaga ber að auglýsa framboðslista á vef sveitarfélagsins og á vef landskjörstjórnar 30 dögum fyrir kjördag, það er í síðasta lagi í dag. Í tæplega mánaðargamalli reglugerð með kosningalögunum er það nýmæli að birta skuli kennitölur frambjóðenda auk nafna þeirra, lögheimili og starfsheiti. Davíð Pétursson, formaður kjörstjórnar, bendir á að með birtingu þessara upplýsinga á netinu liggi upplýsingar um kennitölur þar fyrir um aldur og ævi. 4