Innviðaráðuneytið hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um leigubifreiðar.

Innviðaráðuneytið hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um leigubifreiðar.

Með drögunum er lagt til að atvinnuleyfum til aksturs leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum verði fjölgað úr 580 í 680 en fram hafa komið sjónarmið um að skortur sé á þjónustu leigubifreiða á svæðinu. Þannig fjölgi útgefnum atvinnuleyfum um 100. Öllum gefst kostur á að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að koma að athugasemdum rennur út 25. apríl nk.