Hvaleyrarvatn í apríl 2022 Vatnið er nú barmafullt eftir vorleysingarnar. Það er svokallaður grunnvatnsspegill vegna þess að vatnshæð þess endurspeglar stöðu grunnvatnsins á svæðinu hverju sinni.
Hvaleyrarvatn í apríl 2022 Vatnið er nú barmafullt eftir vorleysingarnar. Það er svokallaður grunnvatnsspegill vegna þess að vatnshæð þess endurspeglar stöðu grunnvatnsins á svæðinu hverju sinni. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vatnshæð í Hvaleyrarvatni og Rauðavatni er með mesta móti nú en í fyrra voru þau nær uppþornuð. „Vatnsstaða Rauðavatns er mjög háð úrkomu.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Vatnshæð í Hvaleyrarvatni og Rauðavatni er með mesta móti nú en í fyrra voru þau nær uppþornuð.

„Vatnsstaða Rauðavatns er mjög háð úrkomu. Eftir allan þennan snjó í vetur er við því að búast að það sé hátt í því núna þegar eru leysingar,“ segir Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, sem fylgist með ýmsum þáttum stöðuvatna á höfuðborgarsvæðinu. Óvenju lágt var í Rauðavatni í fyrravor enda var veturinn þá snjóléttur og lítil úrkoma um vorið og í fyrrasumar. Finnur segir að Rauðavatn sýni vel hvort úrkoma hefur verið mikil eða lítil.

Barmafullt Hvaleyrarvatn

„Vatn er með allra mesta móti í Hvaleyrarvatni. Það er alveg barmafullt,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Vatnið þornaði nær upp í fyrra og segist Steinar aldrei hafa séð það jafn lítið og þá frá því að hann hóf störf þar 1982. „Ég hafði heyrt af svo lágri vatnsstöðu, líklega á sjöunda áratug síðustu aldar, hjá gömlum manni sem var hérna en aldrei séð þetta fyrr en þá,“ segir Steinar.

Engir lækir renna í Hvaleyrarvatn eða úr því. Steinar segir að vatnið sé „grunnvatnsspegill“ og endurspegli grunnvatnsstöðuna hverju sinni.

Hann segir að Hvaleyrarvatn og Höfðaskógur í kringum það sé hjarta útivistarsvæðisins í upplandi Hafnarfjarðar. „Það hefur ekki verið mikið fuglalíf á þessu vatni síðstu áratugi. Fyrir nokkrum árum komu flórgoðar, gerðu sér hreiður og komu upp ungum. Venjulega gerir flórgoðinn sér flothreiður úr sefi, en það vex ekki hér svo þeir gerðu hreiður í víðirunna sem var umflotinn vatni. Þetta gerðu þeir nokkur ár í röð. Í fyrra kom flórgoðapar og gerði sér hreiður en yfirgaf svæðið, líklega vegna þurrkanna,“ segir Steinar. Fróðlegt verður að sjá hvort flórgoðum tekst varp í vor.

Vötnin eru vel vöktuð

Orkuveita Reykjavíkur/Veitur vakta stöðu grunnvatns á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Mannvit og Kópavogsbæ sem vaktar Hvaleyrarvatn, Vífilsstaðavatn og Urriðakotsvatn. Veitur eru með skynjara í yfir 100 borholum á svæðinu. Vatnaskil reka grunnvatnslíkan fyrir höfuðborgarsvæðið og byggja á gögnum úr vöktuninni.

Bjarni Reyr Kristjánsson, jarðfræðingur hjá OR, segir að miklar náttúrulegar sveiflur séu í stöðu grunnvatns á höfuðborgarsvæðinu.

„Vinnsla okkar á neysluvatni er bara örlítill hluti af því sem rennur í gegnum kerfið. Áhrif af vinnslunni eru talin í sentimetrum en náttúrulegu sveiflurnar mælast í metrum,“ sagði Bjarni.

Hann segir að Rauðavatn sé sérstakt og megi kalla það „hangandi“ vatn. Lindarrennsli er í það austanvert og vatnsbotninn nokkuð þéttur. Þegar grunnvatn lækkar við ána Bugðu, suðaustan við vatnið, hættir að renna í Rauðavatn. Þá getur vatnið nær horfið. Mælingar í borholum rétt hjá sýna að vatnsborð grunnvatnsins getur farið marga metra niður fyrir botn Rauðavatns sem „hangir“ þar fyrir ofan. Rauðavatn er því ekki grunnvatnsspegill líkt og Hvaleyrarvatn er.