Bragi Friðfinnsson fæddist 30. júlí 1934. Hann lést 26. mars 2022. Bragi var jarðsunginn 6. apríl 2022.

Elsku afi minn, ég sakna þín. Þú ert floginn í sumarlandið og vonandi nýtur þú þín þar. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur og ég mun gera mitt besta til að gera þig stoltan. Ég mun passa upp á ömmu fyrir þig.

Ýmislegt höfum við brallað saman ég og þú, t.d. varstu spilasjúkur og kenndir mér að spila enda ófáir slagir teknir; fábjáni, kani ... En eitt man ég, þú nenntir aldrei að spila rommí við mig, held bara að þú hafir ekki þorað það...

Benjamín Orri er þitt fyrsta langafabarn sem þú elskaðir og honum kenndir þú að spila einnig.

Þú elskaðir að fá mig í heimsókn með alls konar íþróttafréttir, við vorum ekki alltaf sammála en höfðum gaman af.

Svo má ekki gleyma sætabrauðinu, við hötuðum ekki að fá okkur eitthvað sætt í kaffitímanum.

Ég mun aldrei gleyma þér og mun ávallt halda minningu þinni á lofti.

Minning þín er mér ei gleymd;

mína sál þú gladdir;

innst í hjarta hún er geymd,

þú heilsaðir mér og kvaddir.

(Káinn)

Söknum þín elsku afi og langafi,

Hulda Björk Brynjarsdóttir og Benjamín Orri Hulduson.