Bergljót Arnalds
Bergljót Arnalds
Söngkonan Bergljót Arnalds kemur fram ásamt hljómsveit á tónleikum í Iðnó annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 20 og flytja þau vinsæl frönsk dægurlög.

Söngkonan Bergljót Arnalds kemur fram ásamt hljómsveit á tónleikum í Iðnó annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 20 og flytja þau vinsæl frönsk dægurlög.

Í tilkynningu segir að Bergljót flytji ásamt hljómsveitinni nokkrar af helstu perlum franskra meistara á borð við Edith Piaf, Gainsbourgh, Charles Aznavour, Jacques Brel og fleiri. Hljómsveitina skipa auk Bergljótar Jónas Þórir á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa, Helge Snorri Seljeseth á fiðlu og Eyþór Arnalds á selló.