Ferskir Aron Mola og Arnar Þór bjóða hlustendum inn í stofu til sín í nýja hlaðvarpinu Ólafssynir í Undralandi.
Ferskir Aron Mola og Arnar Þór bjóða hlustendum inn í stofu til sín í nýja hlaðvarpinu Ólafssynir í Undralandi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vinirnir Aron Már, eða Aron Mola eins og er oft kallaður, og Arnar Þór byrjuðu á dögunum með hlaðvarpið Ólafssynir í Undralandi en þar bjóða þeir hlustendum inn í stofu til sín og draga þá með sér í skemmtilegar „kanínuholur“.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosa@mbl.is

Kunnugleg andlit prýða merki glænýs hlaðvarps sem leit dagsins ljós á dögunum. Leikarinn Aron Már Ólafsson, oft kallaður Aron Mola, og fjármálafræðingurinn Arnar Þór Ólafsson, sem er einnig stjórnar hlaðvarpinu Pyngjan , eru mennirnir á bak við hlaðvarpið Ólafssynir í Undralandi. Hlaðvarpið stökk strax upp í fyrsta sæti á vinsældalista Apple podcast en fyrsti þátturinn datt inn á hlaðvarpsveitur á laugardag.

„Svo hér er um afar sjaldgæft kombó að ræða á hlaðvarpsmarkaði og erum við nánast tilbúnir að fullyrða að hér eru áður óseð öfl að mætast á bak við míkrafóninn,“ segir Arnar í samtali við morgunblaðið og K100.is.

„Þrátt fyrir að deila eftirnafni eru ungu mennirnir ekki bræður heldur vinir sem kynntust í Verzló á unglingsárum. Þeir benda lesendum á að hlusta á fyrsta þáttinn til að heyra hvernig vinirnir kynntust.

Aron Már lýsir því að þeir Arnar vilji leyfa hlustendum að líða eins og þeir séu inni í stofu hjá þeim.

„Við viljum vera vinir hlustandans,“ segir Aron sem segir að spjallhlaðvarpið Þarf alltaf að vera grín hafi veitt þeim ákveðinn innblástur enda veit hlustandi alltaf hvað hann er að fara út í þegar hann kveikir á því. Vinirnir segja þó líklegt að þeir fái til sín einhverja viðmælendur í framtíðinni en til að byrja með vilji þeir leyfa hlustendum að kynnast þeim sjálfum.

„Til að byrja með verður áhersla lögð á líflegar umræður um svokallaðar „kanínuholur“ sem ég og Aron eigum reglulega til að detta ofan í á netinu. Þess á milli verðum við með alls konar liði og sprell en þetta er allt í mótun enn þá,“ segir Arnar.

„Hlaðvarpið fjallar í raun og veru ekki um neitt en samt á sama tíma fjallar það um svo ótrúlega mikið. Við erum ekki með neinn fastan þráð í gegnum umræðurnar af því að umræðurnar fara út í geim og til baka,“ segir Aron Már jafnframt.

„Við viljum búa til hlaðvarp sem fólk vill hlusta á – vill koma inn í stofu til þín og hitta góða vini,“ bætir hann við en hann segir einnig að þeir vilji búa til samtal milli hlustenda og hlaðvarpsins.

„Þetta er vinalega hlaðvarpið sem þú hlusta á. Þú vilt hlusta á þetta á leiðinni út í sveit. Þú þarft ekkert að fylgjast með okkur í línulegri röð.“

Áhugaverð hlaðvörp frá Aroni og Arnari

K100 fékk Aron og Arnar til að deila nokkrum af sínum uppáhaldshlaðvörpum með lesendum en þeir eru báðir afar afslappaðir þegar kemur að hlaðvarpshlustun.

Aron mælti strax með hlaðvarpi vinar síns, Pyngjunni, en þrátt fyrir að vera ekki hlutlaus segist einlæglega hafa gaman að því að hlusta á þættina sem fjalla um ársreikninga fyrirtækja.

„Það hljómar þurrt á blaði en það er mjög blautt þegar þú hlustar á það. Ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði áhuga á þessu – og konan mín líka,“ segir Aron sem segir að hlaðvarpið seðji ákveðna forvitni.

Þá fylgjast þeir báðir með hlaðvarpinu Þarf alltaf að vera grín , sem veitti þeim ákveðinn innblástur.

„Þú þekkir raddirnar, þú þekkir einkahúmorinn, þú þekkir einstaklingana,“ segir Aron. „Það er svona eins og að vera kominn inn í stofu til þeirra.“

Blökastið , hlaðvarp Audda, Steinda og Egils, er einnig í uppáhaldi enda menn sem þeir Aron og Arnar hafa fylgst með frá því þeir voru yngri. Þeir eru líka hrifnir af nýja hlaðvarpinu Eftirmál auk þess sem The Snorri Björns Podcast Show og Normið eru í uppáhaldi hjá þeim.