Efling Sólveig Anna Jónsdóttir.
Efling Sólveig Anna Jónsdóttir. — Morgunblaðið/Eggert
Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Hátt í 500 félagsmenn Eflingar hafa skilað inn undirskriftum til félagsins til að knýja fram félagsfund. Fundarefni er ákvörðun stjórnar félagsins að segja upp öllu starfsfólki þess.

Inga Þóra Pálsdóttir

ingathora@mbl.is

Hátt í 500 félagsmenn Eflingar hafa skilað inn undirskriftum til félagsins til að knýja fram félagsfund. Fundarefni er ákvörðun stjórnar félagsins að segja upp öllu starfsfólki þess.

Þetta staðfestir Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari Eflingar í samtali við mbl.is.

Í tölvupósti sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sendi félagsmönnum í gærkvöldi segir að stjórn félagsins muni koma saman til að taka ákvörðun um boðun og tímasetningu fundarins.

„Í dag barst mér jafnframt áskorun frá hópi félagsmanna um að haldinn verði félagsfundur til að ræða um yfirstandandi skipulagsbreytingar á skrifstofum félagsins. Mér er ljúft og skylt að verða við þeirri ósk,“ segir Sólveig Anna í póstinum.

Ekki sama um vegferð Eflingar

Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður hjá Kjörís, sendi fjölmiðlum tilkynningu þess efnis í gærkvöldi að 493 félagsmenn hefðu skrifað undir.

Samkvæmt lögum Eflingar er félaginu skylt að halda félagsfund ef minnst 300 félagsmenn krefjast þess.

„Fjöldi félagsfólks sem flest er verkafólk kom að því að safna undirskriftunum og undirtektir voru almennt góðar. Enda hinum almenna félagsmanni félagsins ekki sama um vegferð og afdrif síns félags,“ segir í tilkynningunni.

„Nauðsynlegt er að fram fari umræða innan félagsins meðal félagsmanna um hversu hættulegt fordæmi stéttarfélagið setur með beitingu hópuppsagnar með þessum hætti.“

Dregur úr trúverðugleika

Í tilkynningunni segir enn fremur að hópuppsagnirnar dragi úr getu félagsins til að standa vörð um hagsmuni félagsfólks.

„Að beita hópuppsögnum með þessum hætti dregur alvarlega úr trúverðugleika stéttarfélagsins og getu þess til að standa vörð um hagsmuni félagsfólks.“