Valencia Martin Hermannsson var í stóru hlutverki í gærkvöld.
Valencia Martin Hermannsson var í stóru hlutverki í gærkvöld. — Ljósmynd/Valencia Basket
Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia eru komnir í undanúrslit Evrópubikarsins í körfubolta eftir nokkuð öruggan sigur á Levallois frá Frakklandi á heimavelli í gærkvöld, 98:85.
Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia eru komnir í undanúrslit Evrópubikarsins í körfubolta eftir nokkuð öruggan sigur á Levallois frá Frakklandi á heimavelli í gærkvöld, 98:85. Martin átti stórgóðan leik með Valencia en hann var með tvöfalda tvennu, skoraði 14 stig og átti 11 stoðsendingar á tæplega 23 mínútum sem hann spilaði. Í undanúrslitunum leikur Valencia við Virtus Bologna frá Ítalíu og fær leikinn á heimavelli þar sem liðið var ofar en það ítalska í riðlakeppninni í vetur.