Gunnar Hersveinn
Gunnar Hersveinn
„Landslagsljósmyndir sem færa okkur fegurð og þekkingu“ er yfirskrift hádegiserindis sem Gunnar Hersveinn heimspekingur heldur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, á 6. hæð Grófarhúss, í hádeginu í dag, fimmtudag, kl. 12.10.

Í tilkynningu segir að siðfræði náttúrunnar hafi verið eitt af meginþemum íslenskrar heimspeki síðustu áratuga, þar hefur sterklega komið fram að öðlast megi þekkingu sem ekki fæst með hefðbundnum lærdómi. Ljósmynd geti opnað dyr huga og ímyndunarafls og veitt okkur innsýn í heim sem er víður og djúpur.

Gunnar Hersveinn mun í erindi sínu varpa ljósi á hlut landslagsljósmyndarinnar í því að kalla fram fegurðarreynslu með áhorfendum. Hann mun alfarið styðjast við landslagsljósmyndir sem eru á yfirstandandi sýningu safnsins Myndir ársins 2021 og leitast við að bæta við upplifun gesta á þeim.