Einar Þór Sverrisson
Einar Þór Sverrisson
Eftir Einar Þór Sverrisson: "Jón Ásgeir var með óskiljanlegum hætti ákærður vegna einhverra viðskipta bankans, sem áttu sér stað fyrir hrun, en sýknaður af þeim sakargiftum á öllum dómstigum."

Ásdís Lóa Þórðardóttir alþingismaður birti grein í Morgunblaðinu í gær þar sem hún réðst með illmælum og órökstuddum dylgjum og fullyrðingum að tilteknum þjóðfélagsþegni.

Hún segir meðal annars: „Jón Ásgeir keypti banka, setti hann á hausinn, skeytti engu um afleiðingarnar...“ og einnig: „Jón gerði sér lítið fyrir, stakk af úr landi með fenginn, og skildi heilt þjóðfélag eftir í sárum.“ Og svo fjúka með ummæli um „skaða sem hann hefði valdið“ og „illa þefjandi súpuna sem hann skildi eftir“ og fleira álíka smekklegt, sem á sér ekki neina stoð í raunveruleikanum.

Einhver kynni að ætla að alþingismaður sem vill að borin sé virðing fyrir sér og þeirri stofnun sem hann starfar hjá myndi reyna að kynna sér málin áður en svo stórum ásökunum er kastað á einstakling, í þessu tilfelli Jón Ásgeir Jóhannesson. Hefði Ásdís gert það hefði hún auðveldlega getað orðið sér úti um vitneskju um að líklega hefur ekki viðskiptaferill nokkurs Íslendings fyrr eða síðar sætt nákvæmari rannsókn yfirvalda, og það án þess nokkurn tímann fyndist snefill af glæpum eins og þeim sem þingmaðurinn telur sér sæmandi að fleipra um í greininni. Áður en hún tjáir sig frekar um þessi mál mætti benda henni á að lesa ársgamla bók, Málsvörn, sem fjallar um viðskiptaferil Jóns Ásgeirs, þar sem farið er yfir viðskiptasögu hans, byggða á vitnisburðum tuga fólks sem best þekktu til, auk skjallegra samtímagagna sem ályktanir voru dregnar af. Meginniðurstöðum nefndrar bókar hefur enginn borið við að andmæla með efnislegum rökum, þrátt fyrir töluverða umfjöllun sem hún fékk.

Staðreyndin er sú að Jón Ásgeir átti ekki ráðandi hlut í Glitni banka hf., eins og þingmaðurinn heldur fram. Jón Ásgeir sat ekki í stjórn bankans, var ekki starfsmaður hans, né hafði hann afskipti af rekstrinum. Jón Ásgeir var með óskiljanlegum hætti ákærður vegna einhverra viðskipta bankans, sem áttu sér stað fyrir hrun, en sýknaður af þeim sakargiftum á öllum dómstigum. Jón Ásgeir hlaut engan dóm eftir íslenska efnahagshrunið. Að þingmaður skuli leyfa sér síðan að halda því fram að hann hafi stungið af úr landi með ránsfeng og skilið 15.000 fjölskyldur eftir í sárum, er ósmekklegt og fjarri öllum sanni.

Að lokum mætti kannski leyfa sér að setja fram þá kröfu eða þá von að umræddur þingmaður, sem og aðrir þingmenn, reyni að setja sig betur en hér var gert, inn í þau mál sem þeim hefur verið treyst til að fjalla um og byggja umræðuna á gögnum og staðreyndum – ekki innihaldlausum upphrópunum – þó ekki væri nema landsmanna allra vegna.

Höfundur er lögmaður.

Höf.: Einar Þór Sverrisson