Soffía Björg heldur útgáfutónleika vegna plötu sinnar, The Company You Keep, í Iðnó í kvöld, 29. apríl, kl. 20. Er það önnur breiðskífa Soffíu og kom út í árslok í fyrra.
Soffía Björg heldur útgáfutónleika vegna plötu sinnar, The Company You Keep, í Iðnó í kvöld, 29. apríl, kl. 20. Er það önnur breiðskífa Soffíu og kom út í árslok í fyrra. Á tónleikunum koma fram með Soffíu þau Unnur Jónsdóttir sem leikur á selló, Ragnhildur Gunnarsdóttir sem leikur á trompet, Pétur Ben gítarleikari, Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari og bakraddasöngkonurnar Fríða Dís og Karítas. Sérstakir gestasöngvarar verða Pétur Ben og Krummi.