Þýsku liðin Eintracht Frankfurt og RB Leipzig eru með undirtökin gegn bresku liðunum West Ham og Rangers eftir fyrri undanúrslitaleikina í Evrópudeildinni í fótbolta sem fram fóru í gærkvöld.
Þýsku liðin Eintracht Frankfurt og RB Leipzig eru með undirtökin gegn bresku liðunum West Ham og Rangers eftir fyrri undanúrslitaleikina í Evrópudeildinni í fótbolta sem fram fóru í gærkvöld.
Eintracht lagði West Ham að velli í London, 2:1, og stendur því vel að vígi fyrir heimaleikinn. Ansgar Knauff og Daichi Kamada skoruðu fyrir þýska liðið en Michail Antonio jafnaði á milli fyrir West Ham. Leipzig vann Rangers 1:0 á heimavelli með marki frá Angelino á 85. mínútu.