Leicester José Mourinho og Brendan Rodgers skildu jafnir í gær.
Leicester José Mourinho og Brendan Rodgers skildu jafnir í gær. — AFP/Oli Scarff
José Mourinho á góða möguleika á að komast með ítalska liðið Roma í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í fótbolta eftir 1:1 jafntefli gegn Leicester í fyrri leiknum á Englandi í gær. Lorenzo Pellegrini kom Roma yfir á 15.

José Mourinho á góða möguleika á að komast með ítalska liðið Roma í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í fótbolta eftir 1:1 jafntefli gegn Leicester í fyrri leiknum á Englandi í gær. Lorenzo Pellegrini kom Roma yfir á 15. mínútu en ítalska liðið skoraði síðan sjálfsmark um miðjan síðari hálfleik.

Feyenoord vann Marseille frá Frakklandi 3:2 í hinum leik undanúrslitanna í Rotterdam. Cyriel Dessers skoraði tvö marka hollenska liðisins og sigurmarkið í byrjun síðari hálfleiks.