„Við erum alltaf að leika okkur að búa til tónlist þó að við séum ekkert alltaf að gefa hana út,“ sagði Birgitta Haukdal sem sagði frá nýju lagi frá Írafári sem hljómsveitin hefur gefið út en nýja lagið heitir Á nýjum stað.

„Við erum alltaf að leika okkur að búa til tónlist þó að við séum ekkert alltaf að gefa hana út,“ sagði Birgitta Haukdal sem sagði frá nýju lagi frá Írafári sem hljómsveitin hefur gefið út en nýja lagið heitir Á nýjum stað. Birgitta ræddi um nýja lagið og komandi afmælistónleika einnar vinsælustu plötu hljómsveitarinnar, sem verða 28. maí næstkomandi, í Helgarútgáfunni á K100 laugardag.

Viðtalið við Birgittu má finna á K100.is.