Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson
Opinber heimsókn forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, hefst í dag í Þinganesi í Þórshöfn þar sem Guðni fundar með lögmanni Færeyja, Bárði á Steig Nielsen.

Opinber heimsókn forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, hefst í dag í Þinganesi í Þórshöfn þar sem Guðni fundar með lögmanni Færeyja, Bárði á Steig Nielsen. Þaðan liggur leiðin til Eiðis á Austurey þar sem forseti heimsækir Sigrúnu Gunnarsdóttur myndlistarkonu sem tekur á móti honum í stúdíói sínu og segir frá list sinni, að því er segir í tilkynningu.

Næst verður haldið til Syðrigötu, þar sem forseti hittir Ósbjørn Jacobsen, aðalarkitekt tónlistarhússins Hörpu í Reykjavík. Loks verður ekið til Glyvrar á Austurey, þar sem forseti á hádegisverðarfund með bæjarstjóra Rúnavíkur, Torbjørn Jacobsen. Síðdegis á forseti fund í sendiráðsbústað Íslands í Þórshöfn með hópi Færeyinga sem komu að frækinni björgunaraðgerð eftir flugslysið í Mykinesi 26. september árið 1970. Þá brotlenti vél Flugfélags Íslands með þeim afleiðingum að átta manns létust en 26 var bjargað. Þess verður minnst að rúm 50 ár eru nú liðin frá atburðinum.

Á morgun á Guðni fund með borgarstjóra Þórshafnar, Heðin Mortensen, í ráðhúsinu. Að þeim fundi loknum flýgur forseti til Mykiness þar sem gengið verður á fjallið Knúk að minnisvarða sem reistur hefur verið um flugslysið og björgunina. Þá býður bæjarstjórinn í Mykinesi til hádegisverðar en síðdegis heldur forseti loks að Vágum og flýgur þaðan til Keflavíkur.