Harðbotna slöngubátur tók niðri við eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Sex voru um borð í bátnum og fram kom í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að aðstæður í Ísafjarðardjúpi hefðu verið krefjandi.

Harðbotna slöngubátur tók niðri við eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Sex voru um borð í bátnum og fram kom í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að aðstæður í Ísafjarðardjúpi hefðu verið krefjandi. Þar hefði verið hvassviðri og kröpp alda.

Kemur jafnframt fram að báturinn hafi orðið aflvana í kjölfar þess að hann tók niðri og rak hann þá stjórnlaust í átt að klettum suður af eyjunni, rétt utan við mynni Hestfjarðar.

Áhöfnin á varðskipinu Þór, þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfn á björgunarskipinu Gísla Jóns voru kallaðar á vettvang á mesta forgangi. Skip og bátar í grenndinni voru einnig beðin að halda á staðinn.

Farþegabátur sem staddur var í Djúpinu var fyrstur að bátnum. Hann náði að koma taug yfir í slöngubátinn og dró hann í höfn laust fyrir klukkan átta.