Erling Braut Haaland
Erling Braut Haaland
Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland verður orðinn leikmaður Manchester City innan fárra daga, samkvæmt breskum fjölmiðlum.
Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland verður orðinn leikmaður Manchester City innan fárra daga, samkvæmt breskum fjölmiðlum. Borussia Dortmund hefur staðfest að City hafi virkjað klásúlu í samningi hans, um að hann geti farið frá þýska félaginu fyrir 64 milljónir punda sem greiddar séu í einu lagi. Haaland, sem er 21 árs, þykir einn efnilegasti framherji heims og hefur skorað 92 deildamörk í 121 leik á ferlinum.