´Gunnar Egilsson
´Gunnar Egilsson
Eftir Gunnar Egilsson: "Ekki þarf að leita nema í fjölmiðla eða fundargerðir til að sjá að það voru sjálfstæðismenn sem stóðu að stækkun leikskólans Álfheima og gerðu að sex deilda skóla."

Þeir eru á ferðinni spýtukarlarnir. Annar er í einhvers konar bestun en hinn í farsæld. Hvor í sínu horni samstarfsins skrifa þeir einhvern tilbúning sem stenst enga skoðun. Og á meðan stækkar nefið. Í viðtölum kemur sama ruglið, titrandi röddu, enda ekki verið að fara rétt með. Ekki líst mér á. Það er von að það þurfi að hlaupa á milli flokka.

Höfum þetta á hreinu. Ekki þarf að leita nema í fjölmiðla eða fundargerðir til að sjá að það voru sjálfstæðismenn sem stóðu að stækkun leikskólans Álfheima og gerðu að sex deilda skóla. Til stóð að setja bygginguna í útboð í maí 2018 en það dróst fram í júní. Öll hönnunarvinna og teikningar voru klárar og eftirlit. Meira að segja tilboðin voru klár, en þá tók nýr formaður framkvæmda- og veitustjórnar, annar spýtukarlanna, sig til og tekur einhliða ákvörðun um að hætta við. Kastaði allri vinnunni út um gluggann og sennilega 30-35 milljónum króna í leiðinni. Eftir þetta var ekkert gert í heilt ár í leikskólamálum, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir mínar um stöðu mála á þeim vettvangi. Í september 2019 skrifaði ég grein þar sem ég upplýsti að 52 börn væru á biðlista eftir leikskólaplássi. Þá datt þeim í hug að mætti setja upp lausar skólastofur á bílaplanið við Álfheimana. Enn ein skyndireddingin. Á þessum tíma kallaði ég eftir því að byggður yrði nýr leikskóli sem fyrst. Vinnan hófst, en eins og áður tók ferlið alltof langan tíma, einkanlega vegna þess að meirihlutinn var ekki búinn að skipuleggja hlutina eða hafa festu á hlutunum. Loks var þessi skóli tekinn í notkun 2021, ári of seint að mínu mati. Sama má segja um Stekkjaskóla, en það er varla hægt að minnast á það ógrátandi. Hálfur milljarður í lausar kennslustofur. Enda farið alltof seint í þá framkvæmd líka. Vinnubrögðin og fjárútlátin í því verkefni eru stórundarleg. Það verður að horfa fram í tímann og gera áætlanir og standa við þær.

Talandi um áætlanir

Það þýðir ekki að horfa fram hjá þeirri staðreynd að það vantar heitt vatn til að mæta þeirri þörf sem komin er upp hvað varðar nýbyggingar í Árborg. Ástæðan fyrir því að við erum þó ekki í verri stöðu er vegna þess hvernig við sjálfstæðismenn héldum á hlutunum í veitumálum. Á okkar tíma boruðum við fimm vinnsluholur. Það þurfti kraft og þor og framtíðarsýn til að ráðast í þetta. Við boruðum í Ósabotnum, Laugardælum og fyrir utan á. Á okkar tíma var gerður samningur um hitavatnsréttindin í Stóra-Ármóti. Vorið 2018 átti í raun bara eftir að skrifa undir samning um réttindi í Oddgeirshólalandi. Þeim samningi hefur ekki enn verið komið á, og samningsstaða sveitarfélagins nú miklu verri en þá. Sinnuleysi núverandi meirihluta í þessum málaflokki er gríðarlegt áhyggjuefni og lýsir sér best í þeirri stöðu sem við horfum upp á núna.

Holan sem var tekin í gagnið 2019 var klár vegna okkar undirbúnings. Hvað hefur núverandi meirihluti gert? Dregið lappirnar og látið bora eina holu; lottóholuna svokölluðu, nema hvað, hún skilar ekki nema rétt rúmum átta sekúndulítrum. Þeir stóðu nefnilega fyrir framan myndavélarnar brosandi og gortuðu sig af lottóvinningnum sínum en áttuðu sig ekki á því að á miðanum var bara ein tala rétt.

Að halda því fram að byggja þurfi nýjan miðlunargeymi til að leysa þessi mál er eins og með alla aðra útreikninga þessara manna – út í loftið.

Talandi um útreikninga

Nú blasir slæm staða bæjarsjóðs við öllum sem sjá vilja. Sumir spýtukarlarnir stinga hins vegar hausnum í sandinn. Staðreyndirnar tala sínu máli. Í tíð núverandi meirihluta í Árborg hafa skuldirnar vaxið úr 11 milljörðum í 22. Hversu dýrt var þetta fótboltahús eiginlega? Og þetta gerist á meðan við vorum rukkuð fyrir hæstu fasteignagjöld landsins og útsvarið í toppi.

Ekki halda því svo fram að þessi skuldaaukning sé vegna þess að það hafi verið svo mikið framkvæmt. Nú eru fjármagnsgjöldin orðin um 850 milljónir króna, 7,5 prósent af tekjum bæjarfélagsins fara í að greiða þau. Í heimilisbókhaldinu er þetta eins og að það þyrfti ein mánaðarlaunin til að borga vextina af yfirdráttarheimildinni. Hver gerir svona lagað? Og svo halda þeir því fram að vaxtakostnaðurinn verði lægri á þessu ári, lækki næstum um 200 milljónir! Hvers konar töfrabrögð eru þetta, á meðan skuldirnar aukast og vextirnir hækka?

Rekstur A-hlutans er ekki sjálfbær undir þessum kringumstæðum, enda skuldahlutfallið nú orðið 181 prósent. Rekstrartapið var 2.480 milljónir. Hækkun á eignarsjóðnum upp á 613 milljónir, sem er bókhaldsbrella, breytir þar engu um. Þetta er glapræði. Það þarf breytt hugarfar varðandi opinbera fjármuni og rekstur sveitarfélags og stofnana þess. Þetta eru peningar fólksins sem býr hérna. Það þarf að fara betur með þá. Meirihlutinn skautar sífellt fram hjá þeirri staðreynd og heldur að það sé ótakmarkað til af peningum. Eina leiðin til að snúa hlutunum við er að setja upp plan og halda sig við það. Fá fólkið sem starfar hjá sveitarfélaginu til að koma með í þessa vinnu.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er búinn að skrifa margt um þessi mál í gegnum tíðina og oftar en ekki fengið yfir mig skítkast og læti, en læt það ekki á mig fá. Svona strengjabrúður skipta mig engu máli, sannleikurinn kemur alltaf í ljós. Ég treysti á að fólk kjósi skynsamlega, skoði þá kosti sem uppi eru og velji það fólk til valda sem horfist í augu við raunveruleikann og þorir að taka á málum með heiðarleikann að leiðarljósi. Setjum x við D á kjördag.

Góðar stundir og takk fyrir mig.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í Árborg. gunni@icecool.is