Svanhildur Hólm Valsdóttir
Svanhildur Hólm Valsdóttir — Morgunblaðið/Eggert
Þrátt fyrir að tekjur og útgjöld sveitarfélaga hafi farið vaxandi hefur afkoma þeirra verið neikvæð um árabil og ljóst að rekstur þeirra er ekki sjálfbær.

Þrátt fyrir að tekjur og útgjöld sveitarfélaga hafi farið vaxandi hefur afkoma þeirra verið neikvæð um árabil og ljóst að rekstur þeirra er ekki sjálfbær. Þetta kemur fram í samantekt Viðskiptaráðs þar sem fjallað er um sveitarstjórnarstigið og fjármál sveitarfélaga.

„Sveitarstjórnarstigið hefur verið rekið með viðvarandi halla síðastliðin 40 ár, að undanskildum fimm árum,“ segir Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

„Of mörg sveitarfélög eru of lítil og veikburða til að bera þá þjónustu sem þeim er ætlað að veita íbúum sínum og lifa í raun upp á náð og miskunn annarra sveitarfélaga og ríkisins með framlögum úr Jöfnunarsjóði,“ segir Svanhildur. 12