Eyjólfur Ármannsson
Eyjólfur Ármannsson
Eftir Eyjólf Ármannsson: "Það var vel við hæfi að ræða Selenskís var fyrsta ræða erlends þjóðhöfðingja á Alþingi."

Ávarp Volodímírs Selenskís, forseta Úkraínu, til alþingismanna og íslensku þjóðarinnar í gegnum fjarfundabúnað sl. föstudag við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis var sögulegt. Þetta var í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis og markar tímamót.

Úkraínska þjóðin heyr nú ein varnarstríð til að verja fósturjörð sína, sjálfstæði, frelsi og mannréttindi og þjóðerni sitt. Það er stríð í Evrópu. Innrásin í Úkraínu ógnar friði í heiminum en engin vissa er því fyrir að þau takmarkist við Úkraínu. Innrásin er ógn við það alþjóðakerfi sem verið hefur við lýði allan lýðveldistímann, eða frá lokum síðari heimsstyrjaldar og byggir á virðingu fyrir alþjóðalögum.

Ræða Selenskís Úkraínuforseta er áhrifamikil og mikilvæg. Allir eru hvattir til að lesa ræðuna, sem er á vef Alþingis. Úkraínuforseti bendir okkur á að fleiri en 500.000 Úkraínumenn hafi nú verið sviptir skilríkjum sínum og fluttir á brott til Rússlands með valdi.

Forsetinn sagði í ræðu sinni m.a. eftirfarandi: Baráttan nú snýst um frelsið, þetta land sem við eigum með réttu, og um menningu okkar, en hún birtir þjóðareðli okkar og greinir okkur frá nágrönnum okkar, og hún varðveitir þráðinn sem liggur milli okkar, barnanna okkar og þeirra kynslóða sem á undan komu.

Í upphafi ræðu sinnar minnir Úkraníuforseti okkur á að Úkraína og Ísland tengist sterkum böndum, að við höfum þekkst vel í meira en þúsund ár og að forfeður okkar hafi átt auðvelt með öll sín samskipti. Þessi sterku bönd minna okkur á siglingar norrænna manna á miðöldum til austurs, upp fljótin sem renna í Eystrasalt og niður þau til Svartahafs. Umfjöllun okkar um norræna miðaldaheiminn takmarkast um of við hinn vestnorræna heim sem Ísland var hluti af. Það takmarkar skilning okkar á mikilvægi víkingatímans og íslenskrar sagnaritunar. Fornsagan Eymundar þáttur Hringssonar minnir á tengsl Norðurlanda og Úkraínu. Sagan gerist í Garðaríki (Úkraínu) og segir frá Íslendingum og öðrum norrænum mönnum þar. Garðaríki var upphaflega stofnað af Svíum og norrænir menn og afkomendur fóru þar lengi með völd. Kænuga er við Dnépr-fljót á verslunarleiðinni á milli Skandinavíu og Miklagarðs (núverandi Istanbúl). Norðmenn hafa ætíð horft út á Atlantshafið en Svíar til austurs.

Svíþjóð og Finnland ræða nú inngöngu í NATO vegna innrásar Pútíns. Eystrasaltsríkin eru í NATO. Við Íslendingar hljótum að styðja einhuga skjóta inngöngu þessara norrænu vinaþjóða okkar í NATO, kjósi þær að tryggja öryggi sitt með inngöngu. Með henni skapast forsendur til náinnar varnarsamvinnu Norðurlanda innan NATO. Innrásin í Úkraínu sýnir mikilvægi aðildar Íslands að NATO og Varnarsamningi okkar við Bandaríkin, sem eru grunnstoðir öryggis- og varnarmálum okkar.

Úkraína er ekki aðildarríki NATO en Íslandi á að standa þétt með vestrænum þjóðum í stuðningsaðgerðum sínum með hinni hugrökku úkraínsku þjóð á örlagatímum í sögu sinni. Við eigum að taka vel á móti Úkraínumönnum sem hingað leita og veita aðstoð flóttamönnum sem streyma frá Úkraínu til Póllands og annarra ríkja Evrópu. Það gerum við með að bjóða sérfræðiaðstoð og með að senda fjármagn til alþjóðastofnana og samtaka sem sinna móttöku flóttamanna.

Ræða Selenskís, forseta Úkraínu, minnir okkur á mikilvægi þess að Ísland sýni samstöðu með úkraínsku þjóðinni í þessu gríðarlega mikilvæga máli sem varðar grundvöll lýðræðis, mannréttinda og sjálfstæðis þjóða. Það var vel við hæfi að hún var fyrsta ræða erlends þjóðhöfðingja á Alþingi og er vonandi upphafið á nýrri hefð á Alþingi Íslendinga. Ræðan minnir á mikilvægi virkrar þátttöku okkur sem sjálfstæðrar herlausrar smáþjóðar í samstarfi lýðræðisþjóða. Með ræðu sinni í þingsal Alþingis færði Úkraínuforseti boðskap þjóðar sinnar sem berst fyrir tilvist sinni og frelsi. Það er boðskapur sem varðar okkur öll.

Höfundur er þingmaður fyrir Flokk fólksins.