Mosfellsbær Oddvitar virtust nokkuð samstiga hvað varðar áherslur flokkanna fyrir næsta kjörtímabil.
Mosfellsbær Oddvitar virtust nokkuð samstiga hvað varðar áherslur flokkanna fyrir næsta kjörtímabil. — Morgunblaðið/Ágúst Ólíver
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Engin stór átakamál blasa við fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ.

Engin stór átakamál blasa við fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ. Ásgeir Sveinsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir fjármálin standa nokkuð vel þrátt fyrir mikið tekjufall í heimsfaraldrinum en samkvæmt langtímafjárhagsáætlun verður hægt að greiða upp skuldir bæjarins samhliða mikilli uppbyggingu.

Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokksins er þó ekki á sömu línu en hann telur bæjarstjórn hafa farið offari og að ákvarðanataka hennar líkist þeirri sem var uppi rétt fyrir hrun. Hann viðurkennir þó að ekki sé auðsótt að skera niður kostnað og því mikil áskorun fyrir höndum.

Meirihlutinn staðnaður

Í Mosfellsbæ geta kjósendur valið milli sjö framboðslista fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en oddvitar þeirra sátu fyrir svörum í kosningaþáttum Dagmála sem koma út í dag. Frambjóðendur tókust á um ýmis málefni en í brennidepli voru skóla- og skipulagsmál.

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn segja þreytu komna í íbúa eftir stjórnarsamstarf Vinstri-grænna og Sjálfstæðisflokksins sem á rætur að rekja til ársins 2006. Stöðnun sé farin að einkenna rekstur bæjarfélagsins og ákall sé eftir breytingum.

Ásgeir segir samstarfið þó ganga afar vel og ekkert hafi komið upp í aðdraganda kosninga sem kalli á uppstokkun meirihlutans. Þá hafi samstarf við minnihlutaflokkana einnig verið gott.

Bærinn vaxi ekki of hratt

Allir oddvitar virðast sammála um að áhersla á uppbyggingu sé nauðsynleg enda fjölgi íbúum bæjarins ört. Þeim ber þó ekki saman um hvort vel hafi tekist við að hafa hemil á þessari þróun eða hvort vaxtaverkir séu farnir að segja til sín.

Ásgeir telur innviði hafa náð að fylgja fjölgun íbúa nokkuð vel. Til að mynda séu skólamál í góðum farvegi og dagvistarúrræði fyrir hendi fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri.

Halla Karen Kristjánsdóttir oddviti Framsóknar er ekki sammála en hún telur áherslu bæjarstjórnar á uppbyggingu hafa gert það að verkum að viðhald innviða og þjónusta við íbúa hafi verið vanrækt. Segir hún jafnframt mikilvægt að klára framkvæmdir sem þegar séu hafnar áður en ráðist verður í nýjar.

Hröð afgreiðsla fyrir kosningar

Á mánudaginn í síðustu viku náðist samkomulag milli Mosfellsbæjar og dótturfyrirtækis Arion banka, Blikastaðalands ehf., um uppbyggingu íbúðabyggðar í Blikastaðalandi, þar sem gert er ráð fyrir 3.500 til 3.700 nýjum íbúðum.

Fulltrúar meirihlutans töldu jákvætt að samkomulagið væri í höfn enda myndi landeigandi koma að uppbyggingu innviða á borð við skólahúsnæði og gatnagerð. „[Landeigandi] greiðir einfaldlega í beinhörðum peningum fleiri, fleiri milljarða,“ segir Bjarki Bjarnason oddviti Vinstri-grænna.

Það kvað við annan tón hjá minnihlutanum sem gagnrýndi harðlega þá hröðu afgreiðslu sem málið fékk og þann skamma tíma sem þeim gafst til að kynna sér efni samningsins. Gagnrýnin beindist fyrst og fremst að vinnubrögðunum en ekki samningnum sjálfum.

„Ég var á skipulagsnefndarfundi föstudeginum áður þar sem fulltrúar frá Arion banka komu og voru að kynna fyrir okkur hvað þeir væru komnir með. Það var ekki hikstað upp að við ættum von á samningi þar sem væri búið að ganga frá niður í smáatriði um allar greiðslur,“ segir Lovísa Jónsdóttir oddviti Viðreisnar.

Land bæjarstjóra skipulagt

Í þættinum rifjar Sveinn Óskar jafnframt upp samningagerð um uppbyggingu lands, sem átti sér stað fyrir rúmum tíu árum, þar sem hann telur að ekki hafi verið gætt að jafnræði.

„Ég sagði það í öðrum viðtalsþætti að þessi tímabil sem ég hef verið í Mosfellsbæ hafa aðallega gengið út á það að skipuleggja land tveggja bæjarstjóra. Leirvogstungan fyrir Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Hulduhólarnir fyrir bæjarstjórann.“

Hann segir annað land hafa verið í boði á sama tíma sem hét Helgafellsland en eigendur þess hafi verið frystir úti.

„Þetta gerði það að verkum að þau gátu hesthúsað fjármagn þegar þeir náðu að selja þessar lóðir sem þeim tilheyrðu. Hún átti spildu hún Ragnheiður í Leirvogstungu og Hulduhólar eru í eigu fjölskyldu bæjarstjórans. Ég segi einfaldlega að þetta er því miður að halda áfram.“

Telur hann mikilvægt að brjóta þetta niður þar sem mikilvægt sé að fá íbúa með til samráðs við þéttingu.

Bærinn breytist ekki í svefnbæ

Ekki bar mikið á áhyggjum þegar fulltrúar meirihlutans voru spurðir út í fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut sem mun leiða hluta umferðar fram hjá bænum.

Samkvæmt greiningu sem var gerð á kjörtímabilinu halda um 20% af allri umferð sem fer í gegnum Mosfellsbæ áfram norður. Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur Mosfellsbæ því enn eiga eftir að njóta góðs af þeim ferðalöngum sem stefna á að fara Gullna hringinn, þar sem þeir skipi stóran hluta þeirra sem eiga leið í gegnum bæinn.

„Við þurfum ekki að hræðast það að Mosfellsbær breytist í einhvern svefnbæ þó að Sundabraut komi,“ segir Ásgeir. Áskorunin nú sé að skapa fleiri spennandi staði í bænum til að fá ferðamenn til að stoppa.

Í því samhengi benti Anna Sigríður oddviti Samfylkingarinnar á að til framtíðar litið væri ekki lífvænlegt að bensínstöðvar væru í hjarta bæjarins.

Öflugt og færanlegt teymi

Málefni skóla komu einnig oft upp í þættinum en flestir oddvitar voru sammála um mikilvægi þess að leggja áherslu á uppbyggingu skólastarfs og m.a. finna stærra rými fyrir Listaskóla Mosfellsbæjar.

Anna Sigríður vakti athygli á því að erfitt væri fyrir börn að fá aðstoð í skólum nema læknisfræðileg greining lægi fyrir, sem oft tæki marga mánuði að fá. „Við verðum að fara að grípa börnin okkar miklu fyrr og við viljum að sveitarfélagið taki það að sér. Við erum að fara að ná í fólk með mismunandi sérfræðiþekkingu, þroskaþjálfa, talmeinafræðinga og sálfræðinga.“

Dagný Kristinsdóttir, oddviti framboðslista Vina Mosfellsbæjar, telur mögulegt að koma á fót öflugu teymi sérfræðinga sem geta farið á milli skóla í bæjarfélaginu.