Trausti Adamsson fæddist á Akureyri 8. apríl 1934. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð 6. apríl 2022.

Foreldrar hans voru Sigurlína Aðalsteinsdóttir húsmóðir og Adam Magnússon húsa- og húsgagnasmiður. Systkini Trausta eru Lilý Erla f. 1933, Aðalheiður f. 1939 og Reynir f. 1948.

Þann 31.12.1956 giftist Trausti Moniku Margréti Stefánsdóttur f.1938.

Þau eignuðust 5 börn. 1)Fjóla Sigurlína f.1955, í sambúð með Sveinbirni Jónssyni f.1956. Börn Fjólu frá fyrra hjónabandi eru Margrét Jónsdóttir f.1974, Emma Björk Jónsdóttir f.1978, Steindór Kristinn Jónsson f.1982, Elfa Berglind Jónsdóttir f.1986  2)Stefán f.1959 í sambúð með Svanhildi Sigurgeirsdóttur f.1957, börn Stefáns og Hjördísar Áskelsdóttur f.1960 - d.2010 eru Monika Margrét f.1978, Halldór Áskell f.1987 og Svala Hrund f.1988

3)Erna Sigurbjörg f.1964 gift Hauki Ármannssyni f.1961 dætur þeirra eru Rut f.1980 og Harpa f.1992

4)Adam f.1968 giftur Önnu Maríu Guðmann f.1966, börn þeirra eru Þórey Lísa Þórisdóttir f.1995, Trausti Lúkas f.2002, Breki Mikael f.2004

5)Örn f.1975 giftur Elsu Björg Pétursdóttur f.1979, börn þeirra eru Pétur Orri f.2007 og Bjarki Fannar f.2010



Trausti ólst upp á Akureyri en dvaldi mörg sumur á Kálfaströnd í Mývatnssveit sem drengur.  Hann gekk í Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór síðan í Iðnskólann á Akureyri og lauk þaðan Húsasmíði. Með honum í húsasmíðinni var góður vinur hans Gunnlaugur Traustason.  Eftir að hafa smíðað sér bát samhliða vinnu við húsasmíðar, fóru þeir á samning hjá Skipasmíðastöð KEA og fengu réttindi til bátasmíða. Trausti byggði sér verkstæði á Óseyri og vann við bátasmíðar fram til 1977 en snéri sér þá aftur að húsasmíðum ásamt Stefáni syni sínum. Á efri árum smíðaði Trausti fjölmargar klukkur í Borgundarhólmsstíl eftir teikningum frá föður sínum.



Útför Trausta fer fram frá Glerárkirkju 29.apríl klukkan 13.

Þegar ég rifja upp 27 ára viðkynningu og síðan vinskap við Trausta Adamsson er ég fullur þakklætis og virðingar fyrir mannkostum hans.

Árni bróðir minn og ég höfðum fest kaup á 20 tonna eikarbát með það að markmiði að blása nýju lífi í skipið. Þó ekki til fiskveiða, heldur til að sigla honum við strendur Íslands í faðmi fjölskyldna okkar og upplifa náttúruna, nú að segja frá nýju sjónarhorni.

Við fengum ábendingu um að Trausti gæti gert það sem við hefðum í huga. Þegar ég spurði hann hvort hann væri til í tuskið með okkur bræðrum var svarið þetta: Já, ég skal gera það. Skemmtilegasta sem ég hef gert er að byggja báta.

Lítum stuttlega yfir sögu tréskipasmíða í landinu á 20. öld. Um 1930 hvöttu stjórnvöld til þróunar skipasmíða í landinu og reyndin varð sú að næstu áratugi óx tréskipaiðnaði slíkur fiskur um hrygg að hann varð samkeppnisfær við skip frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Norður-Þýskalandi og það styrkjalaust.

Svo gerðist hið óumflýjanlega þegar græðgisvæðingin náði nýjum hæðum. Þjóðin hafði náð að stöðva lítt heftar veiðar erlendra togskipa innan fiskveiðilögsögu sinnar og norsk-íslenska síldin var úr sögunni um svipað leyti. En við sátum ein þjóða að landgrunninu. Í kringum 1970 hófst gegndarlaus skuttogaravæðing Íslendinga á botnfisktegundir okkar.

Ekki liðu mörg ár þar til stjórnvöldum varð ljóst að sjálfsstjórn okkar á fiskimiðunum leiddi af sér grafalvarlega ofveiði og við því varð að bregðast.

Lykilorðin urðu minnkum flotann. Settur var á stofn 1990 opinber úreldingarsjóður, hverjum falið var að greiða fiskiskipaeigendum fyrir að selja skipin úr landi eða eyðileggja þau. Afleiðingin varð sú að nú tóku hin einstöku menningarverðmæti, eikarskip íslenskra fiskimanna, að rjúka í reykjarstrókum út í loftin blá.

Þetta varð Trausta gríðarlegt áfall sem og öðrum tréskipasmiðum þjóðarinnar. Þeim sem til þekktu var ljóst að þegar hinn sjálfbæri íslenski skipasmíðaiðnaður var rotaður í einu höggi af lánastofnunum og ríkinu væri verið að binda enda á þúsunda ára þróun í smíði tréskipa. Ekki bætti það úr skák að nú dugði hinni nýju stétt bátasmiða hér stutt námskeið til að öðlast réttindi til að smíða hinn nýja plastbátaflota þjóðarinnar. Samanborið við að til að öðlast tréskipskipasmíðaréttindi þurfti fullt iðnnám.

Mér finnst eins og gerst hafi í gær að þeir feðgar Trausti og Stebbi komu til Húsavíkur til að leggja á ráðin með okkur bræðrum hvernig best færi á að breyta fiskilest bátsins í allt í senn, borðsal, eldhús og hvílur - á sjómannamáli kojur. Þessi heimsókn feðganna var um mitt sumar 1994 og þar hófst margra ára samstarf um að gera fyrrverandi fiskibáta að farþegaskipum.

Í okkar munni fengu þeir feðgarnir, og þar með talinn Addi, sæmdarheitið proppar. Proppur er nákvæmur trétappi sem mikið magn er af í eikarbátunum. Rétt settur proppur í skipi er augnayndi.

Mótleikur Trausta var þegar við mættum til starfa á Óseyrarverkstæði þeirra. Þarna koma fernisbræður. Um fernisolíu varð okkur Húsvíkingum tíðrætt því við notuðum þá náttúrulegu viðarolíu í ómældu magni.

Þeir sem manninn þekktu munu sjá hann fyrir sér með sitt fallega bros, kryddað grallaralegri glettni.

Svona var Trausti. Alltaf vingjarnlegur, gæddur einstakri vinnugleði og í raun hvers manns hugljúfi. Um sómamanninn Trausta munu áfram lifa margar góðar sögur.

Nafntogaður og umsvifamikill bátasmiður á fyrri hluta 20. aldar hét Nói og var hans athafnasvæði á Oddeyrinni. Um það leyti sem hugur þeirra Gulla og Trausta snerist frá húsasmíðum til bátasmíða leituðu þeir til Nóa eftir teikningum. Nói sagði þeim að þeir fengju engar teikningar hjá sér því hann hefði þær allar í hausnum. Það varð þá til þess að þeir tóku að leita í reynslubanka Nóa með því að vinna hjá honum og það varð þeim lærdómsríkur skóli og svo fór að Nói tók að kalla þessa ungu menn Fyglingana sína en úr hans munni var það virðingar- og vináttumerki mikið.

Faðir minn Sigurbjörn lagði verkefnum okkar ómælt lið um margra ára skeið. Hann kunni vel að meta hið einstaklega skemmtilega skopskyn Trausta. Eitt sinn sagði Trausti pabba frá því að í einni af helgarferðum þeirra Gulla og Trausta með starfsmönnum sínum lá leið þeirra út á Flateyjardal. Þetta var snemma sumars, sól skein í heiði og náttúran skartaði sínu fegursta. Í hópnum ríkti mikil gleði og á þess tíma mælikvarða voru fararskjótum leiðangursins flestir vegir færir og skyldi nú aka yfir vaðið á Jökulsá. En þá kom babb í bátinn. Áin var í foráttuvexti og engan veginn bílfær. Nú voru góð ráð dýr, hvað skyldi til bragðs taka?

Þetta er allt í lagi, sagði Trausti, við bara stökkvum yfir. Þá sagði Reynir bróðir hans: Ertu vitlaus maður og ætlar þú þá að stökkva fyrst?

Já, sagði Trausti og bætti við: Kemur þú ekki á eftir?

Trausti var mikið heljarmenni og lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Nú tók hann langt tilhlaup og stökk, en náði þó ekki nærri því út í miðja á, sem náði honum upp undir hendur.
Hann buslaði til baka skellihlæjandi og samferðamönnum var stórlega létt.

Þá spurði pabbi: En stökk þá ekki Reynir á eftir?

Nei, hann vildi ekki stökkva, hann var á strigaskóm, svaraði Trausti skælbrosandi.



Við hjónin þökkum samfylgdina og munum geyma með okkur allar hinar góðu minningar.

Hörður Sigurbjarnarson.



Hörður Sigurbjarnarson