Miðstöð íslenskra bókmennta hefur veitt útgáfustyrki til 54 verka, alls 28 milljónir króna. Í ár bárust 72 umsóknir og sótt var um styrki fyrir um 75 milljónir króna.
Útgáfustyrkir eru veittir árlega til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingarfræðilegt gildi.
Í tilkynningu frá miðstöðinni segir að bækur um sagnfræði, arkitektúr, tvítyngi, knattspyrnu, bókmenntir, myndlist og matarmenningu hljóti útgáfustyrki í ár. Og fleiri viðfangsefni bókanna má nefna: morðmál á 18. öld, matarnytjar í íslenskri náttúru, arkitektúr, myndlist, saga íslenskra kommúnista, konungar Íslands, bókmenntir, hinsegin samtímalist, knattspyrna á Akranesi og svo mætti lengi telja.
Fjölbreytileg verkefni
Meðal verkanna sem hljóta útgáfustyrkina í ár eru:• Samband við söguna. Sögufélag í 120 ár . Höfundar: Íris Ellenberger og Arnór Gunnar Gunnarsson. Útgefandi: Sögufélag
• Textílfélagið í 50 ár . Höfundur: Jón Proppé. Útgefandi: Textílfélagið.
• Vegabréf: Íslenskt – Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó . Höfundur: Sigríður Víðis Jónsdóttir. Útgefandi: Forlagið
• Hildur Hákonardóttir . Höfundur: Sigrún Inga Hrólfsdóttir. Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur
• Mannlíf í 60 ár (vinnuheiti). Höfundur: Rúnar Gunnarsson. Útgefandi: Nýhöfn
• Tvítyngi . Höfundur: Birna Arnbjörnsdóttir. Ritstjóri Ásdís R. Magnúsdóttir. Útgefandi: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum málum.
• Drífa Viðar – Málari, rithöfundur, gagnrýnandi og baráttukona . Höfundur: Drífa Viðar. Ritstjóri Auður Aðalsteinsdóttir
• Veikur af gallsýki og óþverra. Lækningabók Jóns Bergsteds frá árunum 1828-1838. Halldóra Kristinsdóttir. Háskólaútgáfan
• Faldafreyjur Íslands . Höfundur: Guðrún Hildur Rósinkjær. Útgefandi: Annríki – þjóðbúningar og skart.
• Ár og sprænur, Litlu sögurnar í hálfa samhenginu og Ranimosk . Höfundur: Einar Guðmundsson. Útgefandi: Ars Longa samtímalistasafn
• Konurnar á Eyrarbakka. Höfundur: Jónína Óskarsdóttir. Útgefandi: Sæmundur bókaútgáfa
• Ævisaga Guðrúnar Jónsdóttur (vinnutitill). Höfundur: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir. Útgefandi: Forlagið
• Syng mín sál – 40 söngvar úr íslenskum handritum. Höfundur: Árni Heimir Ingólfsson. Útgefandi: Bjartur & Veröld
• Babýlon við Dýrafjörð . Höfundur: Árni Snævarr. Útgefandi: Forlagið.