Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir það eiga eftir að koma í ljós hvort hans borgarstjórasetu sé lokið. Hann útilokar samstarf með Sjálfstæðisflokknum en er tilbúinn í meirihlutasamstarf með öðrum flokkum.

„Við hefðum viljað sjötta manninn og að meirihlutinn myndi halda, ég neita því ekki,“ sagði Dagur í Silfrinu í gær.

Fylgi Samfylkingarinnar dróst saman í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag, miðað við fylgi flokksins árið 2018. Flokkurinn tapaði tveimur borgarfulltrúum og féll meirihlutinn fyrir vikið.