40 ára Eva ólst upp á Raufarhöfn og í Kópavogi og býr í Kópavogi. Hún er bifvélavirki að mennt frá Borgarholtsskóla og starfar sem bifvélavirki hjá Toyota í Garðabæ. Áhugamálin eru bílar, vinir, fjölskyldan og að ferðast.
40 ára
Eva ólst upp á Raufarhöfn og í Kópavogi og býr í Kópavogi. Hún er bifvélavirki að mennt frá Borgarholtsskóla og starfar sem bifvélavirki hjá Toyota í Garðabæ. Áhugamálin eru bílar, vinir, fjölskyldan og að ferðast.
Fjölskylda Eva er í sambúð með Arnari Valgarðssyni, sjálfstætt starfandi járnabindingamanni. Sonur Evu er Kristján Unnar Ragnarsson, f. 2002 og sonur Evu og Arnars er Vilhelm Breki, f. 2008. Foreldrar Evu eru Björg Guðmundsdóttir, f. 1960, d. 2011, vann ýmis störf, og Kristján Hauksson, f. 1958, málari hjá Flügger, búsettur í Kópavogi.