Önnur skyssa. N-NS
Norður | |
♠ÁG8 | |
♥742 | |
♦ÁKG10 | |
♣ÁK3 |
Vestur | Austur |
♠97542 | ♠D63 |
♥K108 | ♥G965 |
♦63 | ♦9874 |
♣D104 | ♣64 |
Suður | |
♠K10 | |
♥ÁD3 | |
♦D52 | |
♣G9852 |
Suður spilar 6G.
Þetta er eitt af skyssuspilum Svíans Jannersteins í bókinni „Finn felet“ (1981). Suður fær út spaða gegn 6G, lætur áttuna í borði og drepur drottningu austurs. Spilar svo ÁK og þriðja laufinu. Tólf einfaldir slagir, en Jannerstein er sáróánægður.
Eina taphættan er slæm lega í laufi, sérstaklega ♣D10xx í vestur. Og það vill svo til að hægt er að dekka þá stöðu með öryggisspilamennsku: fyrst er laufás spilað, síðan er farið heim og laufníu rúllað yfir til austurs.
Tiltölulega einfalt stef, en krefst þess að samgangurinn sé góður. Suður þarf þrjár innkomur: eina til að hleypa laufníunni, aðra til að fría litinn og þá þriðju til að taka fríslaginn. Sagnhafi kemst heim á tíguldrottningu og hjartaás, en þriðja innkoman á spaða fór fyrir lítið í fyrsta slag – hann átti að setja spaðagosann í borði.