Strandveiðar Þröngt setinn bekkurinn í höfninni á Arnarstapa.
Strandveiðar Þröngt setinn bekkurinn í höfninni á Arnarstapa. — Morgunblaðið/Alfons
Mestur afli í maímánuði frá upphafi strandveiða barst á land í fyrradag þegar 320 tonnum var landað á höfnum hringinn í kringum landið.

Mestur afli í maímánuði frá upphafi strandveiða barst á land í fyrradag þegar 320 tonnum var landað á höfnum hringinn í kringum landið. Gott veður var til sjósóknar víðast hvar og margir voru fljótir að ná dagsskammtinum, sem er 774 kíló af óslægðum þorski eða 650 þorskígildi.

Alls lönduðu 464 strandveiðibátar afla í fyrradag og reru flestir þeirra, eða 276, á svæði A, sem nær frá Arnarstapa að Súðavík, samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi smábátaeigenda.

Á mánudag var meðalverð á óslægðum, handfæraveiddum þorski á fiskmörkuðum 399 krónur fyrir kíló og ufsinn seldist á 220 krónur. Miðað við að allur afli hafi verið seldur í gegnum fiskmarkaði lætur nærri að aflaverðmætið hafi verið um 125 milljónir króna.

Eldra met fyrir maí var sett á mánudag í síðustu viku en þá var dagsaflinn 308 tonn. Met á einum degi allt strandveiðitímabilið stendur þó enn óhaggað en 28. júní í fyrra nam aflinn 367 tonnum. aij@mbl.is