Grámann Bale í hlutverki hins illa Gorrs.
Grámann Bale í hlutverki hins illa Gorrs.
Ný stikla fyrir væntanlega kvikmynd um Þór þrumuguð í Marvel-útgáfu, Thor: Love and Thunder , hefur nú verið birt á netinu og má í henni sjá leikarann Christian Bale grámálaðan í hlutverki illmennisins Gorr the God Butcher, eða Gorrs guðabana.

Ný stikla fyrir væntanlega kvikmynd um Þór þrumuguð í Marvel-útgáfu, Thor: Love and Thunder , hefur nú verið birt á netinu og má í henni sjá leikarann Christian Bale grámálaðan í hlutverki illmennisins Gorr the God Butcher, eða Gorrs guðabana. Kvikmyndin verður frumsýnd 8. júlí og er sú fjórða um Marvel-Þór og önnur myndin sem Taika Waititi leikstýrir um kappann. Þótti fyrri mynd Waititi, Thor: Ragnarok , afar vel heppnuð og binda aðáendur Þórs því miklar vonir við þessa.

Gorr fyrrnefndur reynist hin mikla ógn myndarinnar þar sem hann hyggst útrýma öllum guðum. Þarf Þór þá að leita aðstoðar vina sinna. Waititi hefur látið þau ummæli falla um myndina að hún sé það galnasta sem hann hafi nokkurn tíma gert og er þá mikið sagt.