Sveifla Axel Bóasson hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari karla í golfi, síðast árið 2018. Hann hefur þegar unnið eitt mót á Nordic-mótaröðinni í ár.
Sveifla Axel Bóasson hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari karla í golfi, síðast árið 2018. Hann hefur þegar unnið eitt mót á Nordic-mótaröðinni í ár. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Golf Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Axel Bóasson, kylfingur úr Keili, stóð uppi sem sigurvegari Rewell Elisefarm-mótsins í Höör í Svíþjóð, sem er hluti af Nordic-mótaröðinni, fyrir tæpum tveimur vikum síðan.

Golf

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

Axel Bóasson, kylfingur úr Keili, stóð uppi sem sigurvegari Rewell Elisefarm-mótsins í Höör í Svíþjóð, sem er hluti af Nordic-mótaröðinni, fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Skömmu áður hafði hann hafnað í 30. sæti á Barncancerfonden Open-mótinu í Laholm í Svíþjóð, sem var einnig hluti af mótaröðinni, eftir að hafa verið í efsta sæti að loknum öðrum hring þess.

„Það var kominn góður dynjandi í leik minn í mótinu á undan [í Laholm] fannst mér. Ég var byrjaður að spila nokkuð vel og kastaði þessu aðeins frá mér kannski líkt og í seinna mótinu nema í fyrra mótinu var enginn möguleiki fyrir mig að vinna það,“ sagði Axel í samtali við Morgunblaðið á kynningarfundi Golfsambands Íslands í síðustu viku.

Um sigurinn í Höör sagði hann: „Í seinna mótinu var í raun og veru svolítið hvasst, við fengum það sem ég kalla Suðurnesjarokið og ég kíkti aðeins á stöðuna eftir um 5-6 holur, aðeins til að sjá hvar ég væri staddur og þá voru bara allir að spila nokkuð illa.

Eða illa og ekki, aðstæður voru bara ekki nógu góðar og menn voru ekki að gera neitt af viti ef við getum orðað það þannig. Ég hélt bara mínu striki og það virkaði eins og par væri gott skor fyrir lokadaginn. Ég stefndi á það, var einu höggi frá því og það dugði.“

Ætlar að vinna sig aftur upp

Með því að standa sig vel í Nordic-mótaröðinni, sem er þriðja sterkasta atvinnumótaröðin í Evrópu, gefst kylfingum möguleiki á að vinna sig upp í Áskorendamótaröðina, næststerkustu atvinnumótaröð Evrópu, og hefur Nordic-mótaröðin einmitt reynst íslenskum kylfingum góður stökkpallur undanfarin ár.

Axel kvaðst bjartsýnn á að vinna sig aftur upp í Áskorendamótaröðina, en til þess að gera það þarf hann annaðhvort að vera í einu af efstu fimm sætunum að mótaröðinni lokinni eða vinna þrjú mót á henni. „Já ég er búinn að gera það einu sinni. Samkeppnin á öllum mótaröðum í dag er bara að verða harðari og harðari, það eru allir ógeðslega góðir. Fjöldinn er orðinn meiri alls staðar á öllum túrum.

Það er kannski ekki eins sjálfgefið eins og í gamla daga að vinna sig upp, ef svo mætti segja, en það þarf alltaf gott og stöðugt golf. Fyrir mína parta þá þarf ég að vinna í mínum þáttum og þá mun það líklega skila nokkrum svona sigrum. Við erum auðvitað að stefna á að vera í topp fimm eða einfaldlega þessa þrjá sigra.“

Stefnan sett á um 20 mót

Spurður hversu mörgum mótum Axel getur tekið þátt í á Nordic-mótaröðinni þetta árið sagði hann: „Það eru í kringum 26-27 mót á dagskrá á þessari mótaröð og ég er sjálfur að stefna á að taka þátt á 19-20 mótum. Það eru pásur eins og núna, aðeins að koma heim og fara að vinna auðvitað. Ég er með fjölskyldu núna og hús og allt annað sem þarf að græja. Sigurinn hjálpaði auðvitað mikið en þetta er ekki jafn stöðugt eins og með venjulega launatékka.“

Af þeim sökum segir Axel það henta honum best að keppa á nokkrum mótum í röð í senn. „Það er allur gangur á þessu en planið er að fara núna í lok maí og taka þátt í þremur mótum til viðbótar. Þetta er þannig rútína hjá mér, ég tek svona 3-4 mót í einu. Það væri svo erfitt að vera að ferðast fram og til baka en svo í júlímánuði verður bara eitt og eitt mót því þeir eru í fríi sjálfir, s.s. Danirnir og Svíarnir,“ útskýrði Axel.

Er að slá mjög vel

Hann kvaðst almennt bjartsýnn fyrir komandi golfsumri. „Já ég er búinn að vera að spila mjög vel finnst mér síðan í lok febrúar, þegar við fórum á vetrarmótaröðina. Ég er að slá mjög vel en það sem hefur vantað er kannski parturinn af þessu sem snýr að aðstöðunni sem við fáum aldrei bara því við eigum heima á Íslandi, sem er að komast á grasið og fá að vippa og pútta.

Þú færð aldrei almennilega þær aðstæður, en auðvitað væri kannski hægt að undirbúa sig aðeins betur í stutta spilinu. Ég var að vinna mikið í sveiflunni í vetur og kom mjög vel gíraður eftir það en svo vantaði aðeins upp á ákvarðanatökur og stutta spilið. En það púslaðist saman í þrjá hringi á síðasta móti og skilaði sigri,“ sagði Axel að lokum í samtali við Morgunblaðið.