Að geta lesið sér til gagns er grunnfærni í lífinu, lykillinn að námi, þekkingarleit og þekkingarþróun hvers einstaklings. Óásættanlegt er að 39% barna eftir 2. bekk grunnskóla í Reykjavík (2019) lesi ekki sér til gagns.

Að geta lesið sér til gagns er grunnfærni í lífinu, lykillinn að námi, þekkingarleit og þekkingarþróun hvers einstaklings.

Óásættanlegt er að 39% barna eftir 2. bekk grunnskóla í Reykjavík (2019) lesi ekki sér til gagns. Það, að við höfum ekki upplýsingar um stöðuna í öðrum sveitarfélögum, er einnig óásættanlegt

Að 38% 15 ára unglinga nái ekki grunnfærni í lesskilningi og stærðfræði (UNESCO 2020) og að 34% drengja og 19% stúlkna lesi sér ekki til gagns eftir 10 ár í grunnskóla (PISA 2018), er algerlega óásættanlegt.

Að 15 ára börn norskra og danskra innflytjenda skori hærra (457 stig í PISA 2018) í lesskilningi en íslenskir drengir á sama aldri (454 stig) og unglingar á Suðurnesjum (440 stig), Vesturlandi (450 stig) og Norðurland eystra (452 stig) er óásættanlegt fyrir bókaþjóð, sem er þekkt fyrir ómetanlegt framlag sitt til heimsbókmenntanna.

Skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar (2019) sýnir að 92,5% innflytjenda eru á rauðu og gulu ljósi hvað varðar íslenskukunnáttu, kunna sem sagt ekki íslensku.

Skýrsla ASÍ (2020) sýnir að 10,8% af 19 ára ungmennum (500 einstaklingar) eru hvorki í námi eða starfi. Það er hæsta hlutfall frá efnahagshruninu 2008. Kostnaður samfélagsins vegna þessa er gífurlegur, svo ekki sé talað um tapaðan mannauð og harmleiki fyrir einstaklinga sem fá ekki notið sín í samfélaginu.

Með þessari vanrækslu á ungmennum okkar er íslenskt samfélag að tapa miklum mannauði, þrátt fyrir að setja um og yfir 150 milljarða króna á ári í leik- og grunnskóla. Þessi afleita og grafalvarlega staða kallar á tafarlausar aðgerðir Alþingis. Breska þingið brást við svartri skýrslu um lestrarkunnáttu barna með því að lögfesta bókstafahljóðaaðferðina í lestrarkennslu sem skyldi notuð í grunnskólum. Frakkar hafa gert það sama.

Kveikjum neistann-hugmyndafræðin sem nú er framkvæmd í Grunnskóla Vestmannaeyja er aðferðafræði sem við ættum að fylgja. Aðferðafræðin byggist á fremstu alþjóðlega viðurkenndu vísindum og fræðimönnum á sviði náms og færniþróunar. Ásamt lestrarkennslu er staðan metin reglulega, sem er grundvöllur einstaklingsmiðaðrar þjálfunar og eftirfylgni. Árangurinn eftir fyrsta árið í Vestmanneyjum er stórkostlegur. Öll börnin í 1. bekk hafa brotið lestrarkóðann, 96% barnanna geta lesið setningar og 88% barnanna geta lesið samfelldan texta. Þessi árangur kemur ekki á óvart enda er byggt á alþjóðlega viðurkenndum vísindum hvað varðar aðferðafræði (hljóðaaðferð) og framkvæmd. Framkvæmdin byggist á fræðikenningum Ericssons um markvissa þjálfun og eftirfylgni og á kenningum Csikszentmihalyis um að veita áskoranir miðað við færni. Til að kennari geti veitt réttar áskoranir þarf að staða hvers barns að vera ljós.

Flokkur fólksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að nota aðferðafræði og hugmyndafræði Kveikjum neistann í skólum landsins. Sem sagt; byggja á alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði við lestur og nám. Við megun engan tíma missa. Eflum mannauð!

Höfundur er þingmaður fyrir Flokk fólksins og 1. varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar.