Vísir segir sr. Davíð Þór, sóknarprest í Laugarneskirkju, ómyrkan „í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni“. Presturinn skrifar: „Í fréttum er það helst að fasistastjórn VG hefur ákveðið að míga á barnasáttmála SÞ, sem hún þó lýgur því að hún hafi „lögfest“ á Íslandi, en þar kemur skýrt fram að hann gildi um öll börn (þ.e. einstaklinga yngri en 18 ára) í lögsögu hvers ríkis – óháð því með hvaða hætti þau komu þangað.

Þar er kveðið á um að allar ákvarðanir sem varði heill og hamingju barna beri að taka með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Samt á að senda fjölda barna úr langþráðu öryggi og skjóli hér á Íslandi, þvert á það sem þeim er fyrir bestu, til að hafast við í fullkomnu reiðileysi á götum úti á Grikklandi, jafnvel þótt Flóttamannahjálp SÞ hafi af mannúðarástæðum lagst eindregið gegn því að fólk sé flutt þangað.

Til að bíta höfuðið af skömminni er málsvörnin fólgin í innihaldslausu froðusnakki um „heildstæða stefnumótun í málaflokknum“ og því að væna formann Rauða krossins um lygar þegar hún lýsir ástandinu þar. Þetta er í beinni mótstöðu við það hvernig VG-liðar töluðu um þessi mál þegar þeir voru í stjórnarandstöðu. Þinglið og ráðherrar VG eru ekki lengur bara meðsek um glæpi þessarar ríkisstjórnar gegn mannúð og góðu siðferði, þau eru einfaldlega sek eins og syndin.

Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“