Flest bendir til þess að tekjur og afkoma flugfélagsins Play nái ekki þeim markmiðum á árinu sem lagt var upp með í útboðslýsingu félagsins í fyrra. Tekjur á fyrsta fjórðungi þessa árs námu 9,6 milljónum Bandaríkjadala en í útboðslýsingunni var gert ráð fyrir 170 milljóna dala tekjum á árinu. Þó má ætla að tekjur flugfélagsins verði töluvert hærri á öðrum og þriðja ársfjórðungi en þær voru á þeim fyrsta, auk þess sem Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar hafði áhrif á tekjur í byrjun árs. Það er þó mat þeirra sérfræðinga sem ViðskiptaMogginn ræddi við eftir að Play birti uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung í gær að langsótt sé að tekjur það sem af er ári nái því markmiði sem lagt var upp með. Í útboðslýsingunni var gert ráð fyrir tekjum upp á 25 milljónir dala í fyrra en tekjurnar voru aðeins um 16,5 milljónir dala. Þá var tap ársins í fyrra um sjö milljónir dala umfram áætlun.
Gengið aldrei lægra
Tap Play nam 11,2 milljónum dala á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en rekstrartap fyrir fjármagnsliði nam um 13,3 milljónum dala, eða um 1,7 milljörðum króna á núverandi gengi.Gengi hlutabréfa í Play var í lok dags í gær 19,6 kr. á hlut og hefur aldrei verið lægra frá því að félagið var skráð á markað í júlí í fyrra. Gengi félagsins var þá 24,6 kr. á hlut, fór hæst upp í 29,2 kr. á hlut um miðjan október og var um 23 krónur um áramót. Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu í lok febrúar tók gengið dýfu niður á við og fór lægst í 20,1 kr. á hlut fyrstu vikuna í mars. Gengið hækkaði þó aftur og var komið upp í 25,3 kr. síðla apríl, en hefur á liðnum mánuði lækkað jafnt og þétt, eða um 22%.
Viðmælendur ViðskiptaMogga telja þó að félagið geti lækkað einingakostnað með auknum umsvifum, en félagið verður með sex vélar í flota sínum í sumar. Þá hefur félagið tekið upp olíuvarnir og lagt olíugjald ofan á fargjöld.