50 ára Heidi er Borgnesingur en býr í Reykjanesbæ. Hún er sölustjóri UPS á Íslandi. Heidi er í saumaklúbb með 10 hressum Grindavíkurskvísum, golffélagsskap sem heitir Los Hrifos og Golfklúbbi Grindavíkur.
50 ára Heidi er Borgnesingur en býr í Reykjanesbæ. Hún er sölustjóri UPS á Íslandi. Heidi er í saumaklúbb með 10 hressum Grindavíkurskvísum, golffélagsskap sem heitir Los Hrifos og Golfklúbbi Grindavíkur. „Áhugamál mín eru snjóbretti, golf og útivera og ég er dugleg að ferðast, þá aðallega til að golfast.“

Fjölskylda Eiginmaður Heidi er Sigþór Kristinn Skúlason, f. 1972, forstjóri Airport Associates. Börn Heidi eru Arnþór Ingi, f. 1995, Gulli Dan, f. 1996, og Erla Bergmann, f. 2000. Stjúpdætur Heidi eru þrjár. Foreldrar Heidi eru Ósk Ólafsdóttir, f. 1949, d. 2017, og Ásmundur Ólafsson, f. 1950, málarameistari, búsettur í Hafnarfirði. Heidi á fjórar systur og einn stjúpbróður.