Stjórnvöld hafa í mörgum tilvikum endurskoðað eða leiðrétt ákvarðanir sínar í kjölfar fyrirspurna frá umboðsmanni Alþingis.

Stjórnvöld hafa í mörgum tilvikum endurskoðað eða leiðrétt ákvarðanir sínar í kjölfar fyrirspurna frá umboðsmanni Alþingis. Í fyrra lauk til að mynda 48 málum, sem umboðsmaður lét sig varða, með leiðréttingu stjórnvalds og níu málum með endurupptöku í kjölfar spurninga frá umboðsmanni vegna kvartana sem honum bárust. Var þetta um 10% af heildarfjölda kvartana á síðasta ári.

Frá þessu er greint á vefsíðu umboðsmanns og er tiltekið nýlegt dæmi um tilmæli Reykjavíkurborgar til bílastæðasjóðs um að endurskoða ákvörðun um stöðubrotsgjald.

Gert að endurgreiða gjaldið

„Í kvörtun til umboðsmanns vegna málsins voru meðal annars gerðar athugasemdir við að ekki hefði verið tekin formleg ákvörðun af hálfu borgarinnar um að tiltekinn hluti Bankastrætis skyldi vera göngugata á því tímabili sem sektin var lögð á. Óskaði umboðsmaður því eftir upplýsingum frá borginni um hvenær og hver hefði ákveðið að Bankastræti yrði göngugata á umræddum tíma. Hvers vegna ákveðið hefði verið að taka niður merkingar um að umrætt svæði væri göngugata og þá hver hefði tekið þá ákvörðun.“

Segir einnig í frásögn umboðsmanns að hann hafi spurt hvernig borgin teldi að merkingar um göngugötu á þessum hluta Bankastrætis byggði á fullnægjandi grundvell og að sektin samræmdist lögum. „Eftir yfirferð málsins, í framhaldi þessa, ákvað borgin að beina þeim tilmælum til bílastæðasjóðs að endurskoða málið, afgreiða það á réttum lagagrundvelli og endurgreiða gjaldið.“