Fjölmiðlar Hlutafé Kjarnans miðla ehf., sem rekur samnefndan fréttavef og gefur út tímaritið Vísbendingu, var í lok síðasta árs aukið um 25 milljónir króna. Eyrún Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kjarnans, segir í skriflegu svari til ViðskiptaMogga að núverandi hluthafar hafi lagt félaginu til fjármagn. Ekki liggja fyrir upplýsingar um framlag hvers hluthafa en listi yfir hluthafa hefur þó ekki tekið miklum breytingum.
Samkvæmt gögnum sem skilað var inn til fyrirtækjaskrár skattsins má sjá að hluti hlutafjáraukningarinnar kemur til þar sem skuldum félagsins, við stærstu hluthafa, er breytt í hlutafé. Þar á meðal eru 400 þúsund króna skuld við félagið Miðeind ehf., sem er félag í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar, fjárfestis og fv. gjaldkera Samfylkingarinnar, og 500 þúsund króna skuld við HG80 ehf., sem er í eigu Hjálmars Gíslasonar athafnamanns og eiganda GRID. Þá var 400 þúsund króna skuld við Birnu Önnu Björnsdóttur, sem er þriðji stærsti hluthafi Kjarnans, einnig breytt í hlutafé.