Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Allt í kringum okkur eru englar sem auðga veru okkar. Ekki síst þegar skýjað er og þyrmir yfir. Veitum þeim athygli og þökkum fyrir þá."

Eitt sinn varst þú aðeins draumur. Fallegur draumur í huga Guðs. Draumur sem rættist.

Frá upphafi tímanna hefur andi þinn skynjað mig, ó, Guð. Ég hef verið í huga þér frá eilífð til eilífðar. Ég er tilgangur þinn og markmið eins og við öll og allt sem lifir og þarf að hlúa að. Samt erum við eitthvað svo agnarsmá, líkt og sandkorn eða hið minnsta fræ.

Fyrirgefðu mér, höfundur og fullkomnari lífsins, hvað ég læt oftast skelfing illa að stjórn. Hjálpaðu mér að leita daglega leiðsagnar þinnar svo mér farnist vel og mætti verða samferðafólki mínu til blessunar og þér til dýrðar eins og til stóð.

Í ljósi Guðs

Við mannfólkið erum í raun eitthvað svo lítil og hugsum svo smátt. En miskunn Guðs er mikil og magnaðri öllum mannlegum mætti.

Í ljósi mannlegs veruleika erum við í rauninni ekki annað en eins og sandkorn á strönd sem treðst undir í áreiti daganna.

En í ljósi Guðs veit ég að við erum líkt og óendanlega fagrar og dýrmætar perlur sem glitrar á svo tilveran lýsist upp um stundarsakir. Þar til við samlögumst endanlega hinni eilífu birtu í hinum himneska ljóssins yl lífsins.

Jarðneskir englar

Allt í kringum okkur í tilverunni eru englar sem auðga veru okkar. Ekki síst þegar skýjað er og þyrmir yfir. Veitum því athygli, tökum eftir þeim og þökkum fyrir þá.

Boðberar kærleikans eru jarðneskir englar sem leiddir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju og miðla ást. Fylla nútíðina innihaldi og tilgangi. Veita framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiksríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir, styðja, uppörva og hvetja. Þeir sýna hluttekningu, umvefja og faðma, sýna nærgætni og raunverulega umhyggju í hvaða kringumstæðum sem er án þess að spyrja um endurgjald.

Njótum dagsins og lífsins miðað við aðstæður.

Með friðar- og kærleikskveðju.

– Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld, rithöfundur og aðdáandi lífsins.