[ Smellið til að sjá stærri mynd ]

Brynja Hjördís Pétursdóttir fæddist 23. febrúar 1984. Hún lést 11. febrúar 2022.

Útför Brynju fór fram 3. mars 2022.

Svanhvít Harðardóttir fæddist 7. nóvember 1984. Hún lést 23. apríl 2022. Útför Svanhvítar fór fram 4. maí 2022.

Mig langar með örfáum orðum að minnast yndislegra frænkna minna sem báðar létust fyrr á þessu ári.

Elsku hjartans dúllurnar mínar, hvað ég á erfitt með að kyngja því að þið séuð báðar farnar svona ungar, fallegar, yndislegar og svo miklir gleðipinnar. Þið voruð svo miklar dúllur og uppátæki ykkar ansi fjörug oft á tíðum. Brynjan mín var mikið heima hjá Soffíu frænku enda hún og Henni minn óaðskiljanlegir vinir á yngri árum og voru þau svo náin og yndisleg. Svanhvítin mín kom seinna inn í af ýmsum ástæðum en hún og Henni minn urðu yndislegir vinir.

Elsku hjartans dúllurnar mínar, ég vona og trúi að ykkur líði vel í sumarlandinu og að afi og öll hin hafi tekið vel á móti ykkur og passi ykkur þar til við hittumst öll aftur. Góða nótt og sofið rótt, hjörtun mín. Ég elska ykkur. Börnum ykkar sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð að vernda þau og hugga.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sigurður Jónsson)

Ástarkveðja,

Soffía frænka.

Hanna frænka.