Handknattleiksmaðurinn Arnar Freyr Ársælsson hefur samið við Stjörnuna. Kemur hann til félagsins frá KA, þar sem hann hefur verið undanfarið ár. Arnar skoraði 43 mörk í 21 leik með KA í Olísdeildinni í vetur og fór alla leið í bikarúrslit með liðinu.
Handknattleiksmaðurinn Arnar Freyr Ársælsson hefur samið við Stjörnuna. Kemur hann til félagsins frá KA, þar sem hann hefur verið undanfarið ár.
Arnar skoraði 43 mörk í 21 leik með KA í Olísdeildinni í vetur og fór alla leið í bikarúrslit með liðinu. Dagur Gautason fer í hina áttina en hann samdi við KA á dögunum eftir tvö ár með Stjörnunni.
Arnar hefur einnig leikið með Fram og FH og verið einn besti hornamaður úrvalsdeildarinnar undanfarin ár.