Á hreiðri Stolt fálkamóðir með unga.
Á hreiðri Stolt fálkamóðir með unga. — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Varp fálka hefur verið staðfest í manngerðu hreiðri í S-Þingeyjarsýslu. Um er að ræða eitt af þremur hreiðrum sem sett voru upp af Fálkasetri Íslands. Tilgangurinn með gerð hreiðranna er að fjölga varpstöðum innan fálkaóðala í Þingeyjarsýslum.

Manngerðu hreiðrin eru staðsett þar sem hrafnslaupar höfðu áður verið, en fálkinn rænir hrafninn gjarnan hreiðri og rekur hann í burtu af grimmd. Í Þingeyjarsýslum hefur hröfnum farið fækkandi og því hefur dregið úr fjölda laupa sem standa fálkum til boða.

Á annan tug myndavéla er í notkun í grennd við fálkahreiður nyrðra til að fylgjast með grunsamlegum mannaferðum. 14